Styrkir vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu
Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. lög nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu. Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi. Auglýst er eftir umsóknum til verkefna í eftirfarandi tveimur flokkum:
1. Ný tækifæri til náms, með sérstakri áherslu á nám í
verk- og tæknigreinum
Verkefni sem tengjast námi í verk- og tæknigreinum njóta
forgangs. Sérstaklega er litið til verkefna sem stuðla að auknum
tækifærum fyrir þá sem litlu námi hafa lokið innan hins formlega
skólakerfis og hvetja sérstaklega ófaglærða, ungt fólk,
atvinnulausa og erlent starfsfólk til náms sem eykur möguleika þess
á vinnumarkaði.
2. Ferðaþjónusta og útivist
Ferðaþjónusta og útivist hafa verið hratt vaxandi þáttur í íslensku
atvinnulífi og útlit fyrir að svo verði áfram. Vaxandi eftirspurn
er innan þessara greina eftir sérþekkingu á ákveðnum sviðum,
í því skyni að auka gæði þjónustunnar, fagmennsku og öryggi.
Nýsköpunarverkefni njóta forgangs.
Frestur til að sækja um styrk er til 12. mars 2004 og eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi á heimasíðu Starfsmenntaráðs. Til úthlutunar eru 55 milljónir króna.
Rétt til að sækja um styrk eiga:
Samtök atvinnurekenda og launafólks, einstök fyrirtæki, einkaaðilar
eða opinberir aðilar sem standa fyrir starfsmenntun í
atvinnulífinu, starfsmenntaráð einstakra atvinnugreina og
samstarfsverkefni á vegum tveggja eða fleiri framangreindra
aðila. Umsóknir frá skólum koma aðeins til greina þegar um er
að ræða samstarf við framangreinda aðila, einn eða fleiri.
Sjá nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð á vef
Starfsmenntaráðs.