Strámaður á Sprengisandi
Forsætisráðherra var í viðtali Á Sprengisandi sl. laugardag. Margt kom þar fram sem tekið er undir. Ráðherra ræddi mikilvægi þess að auka fjárfestingar og nauðsyn þess að efla verðmætasköpun í atvinnulífinu. Hann sagði mikilvægt að fyrirhugaðar breytingar á sköttum hvetji fyrirtækin til að ráða fólk til starfa. Þannig geti kaupmáttur launa aukist og lífskjör batnað.
Undir þetta taka Samtök atvinnulífsins. Einnig um nauðsyn þess að taka á hallarekstri ríkissjóðs og áhyggjur forsætisráðherra um kostnað ríkisins vegna loforða stjórnmálamanna sem ekki hafa enn verið uppfyllt. Gagnrýni SA á þingsályktun um skuldavanda heimila byggir einmitt á áhyggjum af áhrifum fyrirhugaðra aðgerða á efnahagslífið.
Í umsögn SA er fjallað um óviðunandi sveiflur sem um langa hríð hafa einkennt efnahagslífið og valda aftur og aftur heimilum og fyrirtækjum miklum búsifjum. Sterkustu varnaðarorðin varða síðan afleiðingar þess að almenn höfuðstólslækkun íbúðalána verði á kostnað ríkissjóðs.
Forsætisráðherra sakaði SA um tvískinnung. Þau væru á móti almennri lækkun íbúðaskulda heimila en kölluðu eftir slíku fyrir fyrirtækin. SA og aðildarfélögin stóðu ásamt stjórnvöldum að lausn fyrir fyrirtæki sem kölluð var Beina brautin. Byggt var á því að bankarnir skoðuðu stöðu fyrirtækja sem ekki gátu staðið undir lánum sínum. Skuldir gátu lækkað og reynt var að koma málum þannig fyrir að reksturinn gæti staðið undir skuldunum. Ekki gátu öll fyrirtæki fengið þessa leiðréttingu, mörg urðu gjaldþrota og margir eigendur fyrirtækja töpuðu hlutafé sínu.
Samtök atvinnulífsins hafa aldrei kallað eftir almennri lækkun á skuldum fyrirtækja, hvað þá á kostnað ríkissjóðs. Einstök fyrirtæki hafa höfðað mál og jafnvel unnið þau um að tilteknar lánveitingar hafi verið andstæðar lögum eða ekki staðist af öðrum ástæðum. Þetta hafa einstaklingar einnig gert og þar m.a. komið í ljós að fjöldi gengistryggðra lána stóðst ekki lög. Það felst engin sanngirni í að gagnrýna að einstaklingar og fyrirtæki sæki rétt sinn fyrir dómstólum.
SA telja mikilvægt að benda stjórnvöldum á hverjum tíma á það sem betur má fara í tillögum og lagafrumvörpum. Þá er mikilvægt að þeir sem gagnrýnin beinist að beiti ekki aðferð þar "sem búinn er til gerviandstæðingur og svo ráðist á hann, enda strámaðurinn auðveldari viðureignar en hinn raunverulegi andstæðingur", svo vitnað sé til forsætisráðherra á heimasíðu hans 2. júní.
Samtök atvinnulífsins eru reiðubúin til mikils og náins samstarfs við stjórnvöld og minna á að vinur er sá sem til vamms segir.
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Greinin birtist í Fréttablaðinu í dag, 3. júlí 2013.