Stóriðjuframkvæmdir
Á morgun verður ljós afstaða stjórnar Alcoa til orkukaupasamnings við Landsvirkjun og stóriðju-framkvæmda við Reyðarfjörð. Binda nú flestir vonir við að niðurstaða fyrirtækisins verði jákvæð og að í framkvæmdirnar verði ráðist.
Góð tímasetning
Frá efnahagslegum sjónarhóli myndu þessar framkvæmdir fara af stað
á mjög heppilegum tíma þótt stærðargráða þeirra sé slík að reyni á
hagstjórn. Hægt hefur á í efnahagslífinu og flest bendir til að
atvinnuástand haldi áfram að versna á næstu mánuðum, sbr. könnun SA
meðal aðildarfyrirtækja sem fjallað er um í þessu fréttabréfi. Sú
staðreynd hefur því rifjast upp fyrir landsmönnum að góð lífskjör
og næg atvinna eru ekki eins sjálfsagðir hlutir og margir ætluðu á
nýliðnu þensluskeiði.
Þurfum að auka útflutningstekjur
Íslendingar þurfa að auka útflutningstekjur sínar um nálega 5% á
ári á næstu 10 árum ef við eigum að geta haldið þeim 2,5-3%
hagvexti sem við höfum að jafnaði verið með undanfarna áratugi, og
haldið okkar stöðu meðal þjóða í efnahagslegu tilliti. Gríðarleg
erlend skuldasöfnun Íslendinga undanfarin misseri
þrýstir einnig á um auknar útflutningstekjur. Engin
frambærileg rök eru fyrir því að "eitthvað annað" geti í þeim efnum
komið í stað nýtingar orkulinda þjóðarinnar til uppbyggingar
stóriðju, þótt allri bjartsýni sé til skila haldið varðandi aðrar
greinar. Í því sambandi hefur verið bent á að ef ferðaþjónusta á
einungis að halda sinni stöðu hlutfallslega miðað við framangreinda
aukningu, þarf ferðamönnum á ári á Íslandi að fjölga úr 300 þúsund
í hálfa milljón manna. Væntanlega þarf svo einnig að velta fyrir
sér ýmsum umhvefisspurningum varðandi þá þróun.
Ávinningur af orkusölu
Þá kröfu verður að gera til ráðamanna Landsvirkjunar að orkusala
til stóriðju skili fyrirtækinu viðunandi ávinningi. Yfirlýsing
eigendanefndar fyrirtækisins um yfirgnæfandi líkur á hagnaði gefur
ekki tilefni til að ætla annað en að svo sé.
Leyfi til fyrirhugaðra framkvæmda liggur þegar fyrir að loknu lögformlegu mati á umhverfisáhrifum og þær njóta yfirgnæfandi stuðnings lýðræðislega kjörinna fulltrúa þjóðarinnar. Engu að síður ber mikið á mótmælum umhverfissamtaka og einstaklinga og talsverð umræða hefur skapast um afskipti erlendra umhverfissamtaka af ákvörðunum íslenskra stjórnvalda.
Umhverfisumræða í einlitum farvegi
Að sjálfsögðu er við því að búast að skiptar skoðanir séu um svo
þýðingarmikið málefni, en umræður um umhverfismál virðast í
ákaflega einlitum farvegi á Íslandi. Mikið ber á einstrengingslegri
afstöðu gegn öllu raski á náttúru landsins, en lítið fer fyrir
málefnalegri umræðu um alla lykilþætti sjálfbærrar þróunar, þ.á m.
um félagslega og efnahagslega þróun, og um innra jafnt sem ytra
umhverfi fyrirtækja. Hafa aðilar á borð við Samtök atvinnulífsins,
verkalýðshreyfinguna og sveitarfélög af þessum sökum í raun orðið
viðskila við þann umræðuvettvang sem áður var vísir að í
umhverfismálum og er það miður.
Erlend umhverfissamtök
Íslendingar verða sem hluti af samfélagi þjóðanna að geta rökstutt
fyrir umheiminum þær ákvarðanir sem þeir taka um nýtingu
náttúruauðlinda sinna. Ekkert land er eyland í umhverfismálunum.
Enginn á hins vegar eins mikið undir því í bráð og lengd að þær
ákvarðanir séu ábyrgar og íslenska þjóðin. Óeðlilegt er að
erlend samtök blandi sér um of í ákvarðanir fullvalda þjóðar um
þessi málefni og kann það ekki góðri lukku að stýra eins og
reynslan kennir.
Ari Edwald