Stjórnendur 400 stærstu: Lægð yfir landinu
Niðurstöður Gallup könnunar fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabanka Íslands meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins gefa til kynna óbreytt umsvif í atvinnulífinu á næstunni. Mat stjórnenda á núverandi stöðu í atvinnulífinu er sæmilegt og væntingar um að staðan versni ekki mikið á næstu sex mánuðum. Könnunin hefur verið gerð ársfjórðungslega frá árinu 2006.
Lítill skortur er á starfsfólki á almennum vinnumarkaði og útlit fyrir áframhaldandi fækkun starfa næstu sex mánuði.
Stjórnendur vænta óbreyttrar eftirspurnar á innlendum markaði en aukinni eftirspurn á erlendum mörkuðum.
Verðbólguvæntingar stjórnenda eru við markmið Seðlabankans, þ.e. 2,5% næstu 12 mánuði.
Mat á núverandi aðstæðum óbreytt
Vísitala efnahagslífsins, sem endurspeglar mun á fjölda stjórnenda sem meta aðstæður góðar og slæmar, breytist lítið frá síðustu könnun. 30% stjórnenda telja aðstæður góðar í atvinnulífinu en 15% telja þær slæmar. Matið er lakast í ferðaþjónustu og byggingariðnaði.
Bata ekki að vænta eftir 6 mánuði
Aðstæður verða ekki betri eftir sex mánuði að mati stjórnenda. 28% stjórnenda telja að aðstæður batni en 27% að þær versni.
Skortur á starfsfólki minnkar enn
Lítill skortur er á starfsfólki. Einungis 13% stjórnenda finna fyrir skorti sem er svipað og fyrir ári síðan. Skortur á starfsfólki er mestur í ýmissi sérhæfðri þjónustu.
Starfsmönnum gæti fækkað um 600 á næstu 6 mánuðum
24 þúsund starfsmenn starfa hjá fyrirtækjunum í könnuninni. 14% fyrirtækjanna búast við fjölgun starfsmanna en 24% við fækkun á næstu sex mánuðum.
Ætla má að starfsmönnum fyrirtækjanna í heild fækki um 0,5% á næstu sex mánuðum sem er sama niðurstaða og fyrir þremur mánuðum. Sé niðurstaðan yfirfærð á allan almenna vinnumarkaðinn gæti störfum fækkað um rúmlega 600 á næstu sex mánuðum. Fjölgunin er tæplega 1.100 hjá þeim sem áforma fjölgun en fækkunin rúmlega 1.700 hjá þeim sem áforma fækkun.
Stjórnendur byggingarfyrirtækja sjá fram á mesta fækkun starfsmanna en verslun kemur þar á eftir. Fækkun starfa virðist framundan í flestum atvinnugreinum nema ýmissi sérhæfðri þjónustu.
Vænta verðbólgu við markmið
Verðbólguvæntingar stjórnenda eru stöðugar og búast þeir við verðbólgu við markmið Seðlabankans að ári liðnu. Stjórnendur vænta þess að verðbólgan verði 3,0% eftir tvö ár.
Óbreytt eftirspurn á innanlandsmarkaði
Stjórnendur búast við svipaðri innlendri eftirspurn á næstu 6 mánuðum og verið hefur undanfarið. 22% stjórnenda búast við aukningu, 19% búast við samdrætti, en aðrir óbreyttri eftirspurn. Horfur eru betri á erlendum mörkuðum því 32% stjórnenda búast við aukinni eftirspurn þar en 13% við samdrætti.
Um könnunina
Samtök atvinnulífsins eru í samstarfi við Seðlabanka Íslands um reglubundna könnun á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyrirtækja á Íslandi. Könnunin er gerð ársfjórðungslega og er framkvæmd hennar í höndum Gallup. Minni könnun með 9 spurningum er gerð í annað hvort skipti, en hin skiptin er hún ítarlegri með 20 spurningum. Að þessu sinni var hún gerð á tímabilinu 8. nóvember til 2. desember 2019 og voru spurningar 9.
Í úrtaki voru 422 fyrirtæki sem teljast stærst á landinu miðað við heildarlaunagreiðslur og svöruðu 211, þannig að svarhlutfall var 50%. Niðurstöður eru greindar eftir staðsetningu fyrirtækis, atvinnugrein, veltu, starfsmannafjölda og hvort fyrirtækið starfi á útflutnings- eða innanlandsmarkaði. Atvinnugreinaflokkar eru sjö: (1) Sjávarútvegur, (2) iðnaður, (3) byggingarstarfsemi og veitur, (4) verslun, (5) samgöngur, flutningar og ferðaþjónusta, (6) fjármála- og tryggingastarfsemi og (7) ýmis sérhæfð þjónusta. Ekki er um að ræða samræmda túlkun samstarfsaðilanna á niðurstöðum könnunarinnar.