Stefnuyfirlýsing G8 fundarins: Hagvöxtur og ábyrgð
Stefnuyfirlýsing 8 helstu iðnríkja heims sem samþykkt var á fundi leiðtoga ríkjanna í gær ber yfirskriftina "Vöxtur og ábyrgð í hnattrænu hagkerfi". Þar er ítarlega fjallað um helstu verkefni sem eru á döfinni í efnahagskerfi heimsins.
Hagkerfi heimsins
Farið er yfir hvernig smám saman hafi náðst aukið jafnvægi
í efnahagsþróuninni en verkefnin framundan hjá ríkjunum séu m.a. að
draga úr halla ríkissjóðs í Bandaríkjunum og að halda fast við
Lissabon áætlunina um að efla hagvöxt og fjölga störfum í Evrópu.
Einnig er lögð áhersla á að ríki í Asíu taki upp meiri
sveigjanleika í skráningu gjaldmiðla og að olíuríkin auki
framleiðslu sína. Fjallað er um stöðugleika fjármálamarkaða og
nauðsyn þess að auka gagnsæi vogunarsjóða. Mikilvægt er talið að
auka frelsi til fjárfestinga og hvetja til þeirra.
Viðskiptahindranir og verndarstefna leiði til minni velferðar.
Hvatt er til þess að ríki heims leyfi alþjóðlegum fyrirtækjum í
auknu mæli að bjóða í verkefni í þróunarríkjum. Með því að leyfa
beina erlenda fjárfestingu í grunnkerfum þróunarríkja og hvetja til
samstarfs alþjóðlegra fyrirtækja og heimaaðila megi auka þekkingu
og bæta tækni þar. Fjallað er um ýmsar útfærslur á slíkum
verkefnum.
Félagslegt öryggi
Lögð er áhersla á að alþjóðavæðingu og tæknilegum framförum fylgi
einnig aukin félagsleg velferð og að stutt verði við það starf sem
fram fer hjá Alþjóða vinnumálastofnuninni í því skyni. Lögð er
áhersla á að einkafyrirtæki sýni fulla ábyrgð á þessu sviði og í
umhverfismálum.
Efling nýsköpunar og vernd réttinda
Vísindi, rannsóknir og nýsköpun leggja grunn að hagvexti
og aukinni velferð. Lykilatriði sé að efla þessa þætti í öllum
ríkjum heimsins. Samspil vísinda og menntunar og að rannsóknir
skapi verðmæti í formi nýrrar þjónustu og vöru sem leiði til þess
að auðveldara verður að takast á við áskoranir sem framundan eru.
Leiðtogarnir leggja áherslu á vernd einkaleyfa og hugverkaréttinda
og að berjast gegn ólöglegri hagnýtingu þessara réttinda. Hvatt er
til þess að ríki heims sameinist um vettvang til að fjalla um vernd
rétttinda sem skapast með nýsköpun.
Ábyrg nýting
Vinnsla hráefna úr jörðu er mikilvæg fyrir sjálfbæran
hagvöxt. Í mörgum fátækustu ríkjum felast í þeim mikilvæg verðmæti
til að skapa vöxt og draga úr fátækt. Það eru sameiginlegir
hagsmunir allra að þessar auðlindir séu nýttar á ábyrgan hátt og
mikilvægt er að tryggja gagnsæi við nýtingu þeirra og
viðskipti með þær. Hvatt er til þess að námufyrirtæki gefi
reglulega upplýsingar um nýtingu og að byggt verði upp
vottunarkerfi til að auka gagnsæi á þessu sviði. Mikilvægt er að
berjast gegn spillingu og misbeitingu. Því er fagnað að
stórir bankar styðji við frumkvæði Umhverfisstofnunar Sameinuðu
þjóðanna á þessu sviði og aðrir hvattir til að fylgja í þau
fótspor.
Baráttan við spillingu
Því er lýst yfir að eitt mikilvægasta verkefni G8
samstarfsins sé baráttan við spillingu bæði í einstökum ríkjum og á
heimsvísu. Þung áhersla verður lögð á aukið samstarf á þessu sviði
auk þess sem ríki verða aðstoðuð við ná aftur eignum sem horfið
hafa á ólöglegan hátt. Eftirlit með samningum verður aukið með það
að markmiði að draga úr mútugreiðslum. Til að tryggja beina erlenda
fjárfestingu í þróunarríkjum er alger nauðsyn að efnahagskerfi
ríkjanna sé stöðugt, gegnsætt og laust við spillingu.
Heiligendamm ferlið
Leiðtogarnir hafa rætt við þjóðarleiðtoga Brasilíu, Indlands, Kína,
Mexíkó og Suður Afríku um áskoranir sem takast þarf á við í
hagkerfi heimsins. Hvorki G8 ríkin né önnur ríki geta tekist á við
þær án stuðnings annara. Efnt er til viðræðna sem hefjast í haust
og á að ljúka fyrir leiðtogafund á Ítalíu 2009. Í viðræðunum
verður lögð áhersla á fernt:
Að hvetja til nýsköpunar og afla henni verndar.
Að auka frelsi til fjárfestinga í opnum hagkerfum þar sem áhersla er lögð á félagsleg réttindi.Að skilgreina sameiginlega ábyrgð í þróunarmálum og taka sérstakt tillit til Afríku.
Að miðla þekkingu til að bæta orkunýtingu og tæknisamvinnu með það að markmiði að draga úr útstreymi koldíoxíðs.
Stór hluti stefnuyfirlýsingarinnar fjallar um loftslagsbreytingar, orkunýtingu og orkuöryggi og er fjallað um það í öðrum pistli hér á vef SA.
Auk stefnuyfirlýsingar gáfu leiðtogarnir út sérstaka yfirlýsingu um "Hagvöxt og ábyrgð í Afríku" þar sem fjallað er um fjölmörg atriði svo sem baráttuna við alnæmi og aðra smitsjúkdóma, hlutverk lyfjaiðnaðarins, betra heilbrigðiskerfi og öryggi og frið.
Vefur G8 fundarins er hér.