Starfsmenntaverðlaunin til Eimskips, Eftirmenntunar vélstjóra og Verkmenntaskólans á Akureyri
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Starfsmenntaverðlaunin 2003 í dag, á síðasta degi Viku símenntunar. Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs og Menntar eru veitt þeim aðilum sem þykja vinna framúrskarandi starf á sviði starfsmenntunar á Íslandi og eru þau veitt í þremur flokkum; flokki fyrirtækja og félagasamtaka, flokki skóla og fræðsluaðila og í opnum flokki.
Verðlaunahafarnir í ár eru Eimskip í flokki fyrirtækja,
Eftirmenntun vélstjóra í flokki skóla og fræðsluaðila og í opnum
flokki var Verkmenntaskólinn á Akureyri verðlaunaður fyrir öfluga
uppbyggingu fjarnáms.