Starfsmenn í sama liði oft misverðmætir
Viðtal Fréttablaðsins við Hrafnhildi Stefánsdóttur, yfirlögfræðing SA:
"Eðlilegar ástæður eru oftast fyrir launamun milli kvenna og karla í sambærilegu starfi," segir Hrafnhildur Stefánsdóttir yfirlögfræðingur Samtaka atvinnulífsins sem hélt fyrirlestur á málþingi um launajafnrétti sem haldið var á Bifröst í síðasta mánuði. "Einstaklingsbundin viðmið við launaákvarðanir" hét fyrirlesturinn og hóf hún hann á að varpa upp myndum af fótboltamönnum. "Ég notaðist við þá sem líkingu, því við vitum jú að menn sem eru í sama liði og spila sömu stöðu eru misverðmætir. Þeir færustu eru mun meira virði en þeir sem ekki standa sig jafn vel og eru laun þeirra samkvæmt því," segir Hrafnhildur.
"Sömu lögmál gilda á vinnumarkaði, þar sem fólk á að fá laun
eftir færni og getu og þar með verðgildi en ekki kyni. Hlutlægar og
málefnalegar ástæður verða að vera fyrir launamun kvenna og
karla í sama eða sambærilegu starfi, og ef á reynir liggur
það á vinnuveitandum að sýna fram á þessar ástæður," segir
Hrafnhildur. Þessar ástæður geta ráðist af ýmsum þáttum eins og
markaðsaðstæðum, frammistöðu, þekkingu og menntun, starfsreynslu og
sveigjanleika. Aðilar á samkeppnismarkaði geta ekki leyft sér að
horfa framhjá slíkum þáttum en verðlauna það sem engu máli skiptir
eins og kynferði. Aðstöðumunur hefur verið á milli kynjanna hvað
varðar möguleika til fullrar atvinnuþáttöku. "Sú skoðun hefur verið
ríkjandi að konur séu enn að bera mun meiri ábyrgð á
heimilishaldinu en karlmenn. Þessi jöfnuður sem kominn er á
vinnumarkaði hefur ekki alveg flust inn á heimilin og það veikt
samkeppnisstöðu kvenna í atvinnulífinu, en við bæði teljum og vonum
að það sé að breytast." segir Hrafnhildur.