Starfsgreinasambandið birtir kröfugerð sína
Starfsgreinasamband Íslands (að undanskildum Flóabandalagsfélögunum) hefur birt kröfugerð sína vegna komandi kjarasamninga. Í kröfugerðinni er lögð höfuðáhersla á að samið verði um nýja launatöflu, sem byggi á sex þrepum og öllum starfsheitum sem taka laun eftir samningum SGS verði raðað inn í töfluna. Samningstími verði fjögur ár, að því gefnu að takist að semja um nýja launatöflu og tryggingarákvæði. Annars verði samið til skemmri tíma.
Hækkun lægstu launa hefur forgang í kröfugerðinni. Gangi þetta
eftir og samið verði til fjögurra ára, er gert ráð fyrir því að
lægstu taxtar hækki um 30% á tímabilinu, almennar launahækkanir
verði 19% og dagvinnutrygging hækki um 40%. Kröfugerðin hljóðar upp
á að almennar launahækkanir verði 5% árin 2004 og 2005 og 4% árin
2006 og 2007. Dagvinnutrygging á samningstímanum verði kr. 110.000
árið 2004, kr. 117.000 árið 2005, kr. 124.000 árið 2006 og kr.
130.000 árið 2007.
Þá er gerð krafa um að lífeyrisframlag atvinnurekenda í
séreignasjóð hækki um 1% 1. júni 2005, að fræðslusjóðnum Landsmennt
verði tryggt áframhaldandi fjármagn með 0,3% greiðslu
atvinnurekenda af launum í sjóðinn o.fl.