Sóknarfæri á sviði íslenskrar hönnunar
Íslensk fatahönnun veltir um fimm milljörðum króna á ári og innlend sala er áætluð um tveir milljarðar króna. Á síðasta ári seldu íslensku fyrirtækin Nikita, Elm Design og Andersen & Lauth fyrir tvo og hálfan milljarð króna erlendis. Félagar í Fatahönnunarfélagi Íslands eru 50 og um 500 manns vinna greininni þar sem veruleg sóknarfæri eru til staðar. Til samanburðar má nefna að 10.000 manns vinna við fatahönnun í Danmörku, greinin veltir þar 544 milljörðum og fatahönnun er í 4. sæti yfir útflutning Dana.
Þetta kom fram í máli Steinunnar Sigurðardóttur, fatahönnuðar, en hún ávarpaði aðalfund SA fyrst allra hönnuða á síðasta degi vetrar.

Á aðalfundi SA ræddi Steinunn m.a. um þá miklu möguleika sem eru til staðar í skapandi greinum á Íslandi. Hagtölur um greinina liggja ekki fyrir og er umfang hennar því áætlað en þó er ljóst að íslensk hönnun skiptir orðið verulegu máli fyrir atvinnu- og efnahagslífið og sóknarmöguleikar eru þar margir.
Steinunn veitti aðalfundargestum skemmtilega innsýn inn í starfsumhverfi hönnuða og dró fram á skýran hátt hversu mikla vinnu þurfi að inna af hendi frá því hugmynd kviknar þar til vara lítur dagsins ljós með tilheyrandi markaðssetningu og söluáætlunum. Steinunn sagðist sækja sinn innblástur í söguna og náttúruna eins og sjá má glöggt af meðfylgjandi mynd.

Í erindi sínu fjallaði Steinunn m.a. um miðborg Reykjavíkur sem hún sagði vera miðju hönnunar og lista á Íslandi. Í miðborginni hefur hreiðrað um sig mikill fjöldi íslenskra hönnuða, verslanir með hönnun og listasöfn. Steinunn sagði að í raun mætti líta á miðborgina sem eitt stórt sýningarsvæði fyrir íslenska hönnun sem væri einstakt og það mætti þróa áfram enn frekar til betri vegar. (Lista yfir hönnuði, verslanir og söfn í miðborginni má nálgast hér að neðan).
Framtíðarsýn nýútskrifaðra arkitekta á Íslandi
Það er ljóst að Íslandi veitir ekki af skapandi hugsun
til að takast á við þær fjölmörgu áskoranir sem blasa við þjóðinni.
Á aðalfundi SA ræddi Steinunn um framtíðarvonir og væntingar
nýútskrifaðra arkitekta á Íslandi sem hún hefur unnið með og þar á
bæ vantar ekki hugmyndir. Varðandi framþróun miðborgarinnar og
upplyftingu sýndi Steinunn m.a. hugmynd að heitum potti á miðjum
Laugaveginum, framúrstefnulegum söguskiltum sem yrði komið fyrir
vítt og breitt um miðborgina og hugmynd að jólaskreytingum sem væru
byggðar á íslenskri arfleið.

Steinunn hvatti Reykjavíkurborg til að endurhugsa jólaskrautið fyrir næstu jól og hvatti sömuleiðis fyrirtæki í ólíkum greinum til að vinna meira saman. Það væri kjörið að fá hönnuði til að setjast í ráðgjafarráð framleiðslufyrirtækja og eins væri kjörið að fólk með góða og dýrmæta rekstrarþekkingu til að leggja íslenskum hönnuðum lið í þeirri sókn sem framundan er.

Sjá nánar:
Hönnun & list - verslanir & gallerý í miðborg Reykjavíkur:
ELM Design
Asta Creative clothes
Hanna
Aftur
Spakmannsspjarir
Gust
Rósa Helga
BIRNA
66° North
María Lovisa
Lykkjufall
Andersen & Lauth herra
Hildur Bolladóttir
Dogma
STEiNUNN
Eggert Feldskeri
E-label
Cintamani
Juniform
Andersen & Lauth konur
Ryk
Nostrum
Thelma Design
Dead
Nostrum
Húfur sem hlægja
Nakti Apinn
Ein Vera Kalda
Orr
Kirsuberjatréð
Blue Lagoon
Aurum
Dún og Fiður
Kraum
Handprjónsambandið
Listaselið
Art and Design
Listasmiðja Ófeigs
Monthe & Simonsen
Moods of Norway
Merimekko
ER
Bitte Kai Rand
Kron Kron
Kisan
Rammagerðin
Kogga
Sautján
Gilbert
Smekkleysa
12 tónar
Skífan
Mál og Menning
Skuld
Listasafn Íslands
Listasafn Reykjavíkur
Gallery i8
Gallery 101
Gallery Terpentine
Gallery