Sneypuför Eflingar gegn Eldum rétt
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá dómi öllum kröfum fjögurra fyrrverandi starfsmanna starfsmannaleigu sem starfað höfðu í nokkra daga fyrir Eldum rétt. Dómurinn telur ótvírætt að laun hafi verið í samræmi við kjarasamninga og greidd að fullu, löglegt hafi verið að draga frá launum útgjöld á borð við húsaleigu og flugfargjöld og lýsing Eflingar á aðbúnaði starfsmanna hafi ekki verið í neinu samræmi við staðreyndir málsins.
Efling stéttarfélag hafði upp stór orð í fjölmiðlum og sakaði fyrirtækið Eldum rétt meðal annars um að nýta sér bágindi verkafólks og skipta við starfsmannaleigu sem forsvarsmenn Eflingar kölluðu ,,einhvers konar mansalshring.“ Þá var teiknuð upp dökk mynd af fyrirtækinu í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV.
Ljóst er að aðför Eflingar að Eldum rétt og tilefnislausar ásakanir hafa valdið fyrirtækinu miklu tjóni og er eðlilegt að fyrirtækið skoði réttarstöðu sína gagnvart Eflingu. Starfsmönnum var gert að greiða sameiginlega fjórar milljónir í málskostnað til stefndu sem undirstrikar það mat héraðsdóms að málshöfðun Eflingar var tilefnislaus.