Skráning hafin á Umhverfisdag atvinnulífsins
Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn rafrænt á miðvikudaginn, þann 14. október 2020 frá 8.30-10.
Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.
Í ár er viðburðinum eingöngu streymt rafrænt í opinni dagskrá á vef SA, samfélagsmiðlum og fjölmiðlum. Dagskrá hefst kl. 8.30 og stendur til að verða 10.
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins í ár verða veitt fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum. Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verðlaun fyrir umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins.
Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku
Ávörp flytja:
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA |
Kristín L. Árnadóttir, aðstoðarforstjóri LV |
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion |
Jónína G. Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Terra |
Ari Edwald, forstjóri MS |
Umhverfisverðlaun atvinnulífsinsForseti Íslands afhendir viðurkenningu |