Skráning á fræðslufundaröð SA um starfsmannamál og kjarasamninga
Samtök atvinnulífsins bjóða félagsmönnum sínum upp á fræðslufundi um starfsmannamál og kjarasamninga sem gagnast öllum sem hafa starfsmannamál á sinni könnu. Fundurinn fer fram í gegnum fjarfundarforrit. Félagsmönnum gefst færi á að senda spurningar í gegnum spjallþráð forritsins, en slóðin á fundinn verður send út með tölvupósti þegar nær dregur.
Meðal þess sem verður fjallað um:
- Ráðning starfsmanna
- Vinnutímaákvæði kjarasamninga
- Helstu réttindi og skyldur starfsmanna og vinnuveitanda
- Uppsagnir og starfslok
- Orlofsréttur
- Veikindi og vinnuslys
Lögfræðingar á vinnumarkaðssviði Samtaka atvinnulífsins sjá um fræðsluna.
Fundirnir eru aðeins opnir starfsfólki aðildarfyrirtækja SA
Vinsamlegast skráið þátttöku á viðeigandi hnöppum.
Afgreiðslu- og skrifstofufólk
Þriðjudagur 2. mars kl. 13:00-14:15
Starfsmannamál og kjarasamningar
Starfsfólk í ferðaþjónustu
Fimmtudagur 11. mars kl. 13:00-14:15
Starfsmannamál og kjarasamningar
Fiskvinnsla
Þriðjudagur 16. mars kl. 13:00-14:15
Starfsmannamál og kjarasamningar
Iðnaðarmenn
Þriðjudagur 23. mars kl. 13:00-14:15
Starfsmannamál og kjarasamningar
Vinnumarkaðsvefur SA
Félagsmenn eru minntir á vinnumarkaðsvef SA þar sem nálgast má ýmsar hagnýtar upplýsingar um starfsmanna- og kjaramál. Lögmenn vinnumarkaðssviðs SA eru sem fyrr reiðubúnir til að aðstoða félagsmenn með starfsmanna- og kjaramál.