Skattkerfið og hár fjármagnskostnaður takmarka vöxt lítilla og meðalstórra fyrirtækja
Að mati lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi eru skattkerfið og hár fjármagnskostnaður helstu hindranirnar fyrir vexti þeirra á næstu árum. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar sem gerð var fyrir Smáþing sem fram fer á morgun, fimmtudaginn 10. október. Skortur á fjármagni og hæfu starfsfólki koma þar á eftir, ásamt lítilli eftirspurn á markaði, reglubyrði og gjaldeyrishöftum.
Fyrirtækin voru beðin um að nefna þá þætti í starfsumhverfinu sem hindra vöxt þeirra og forgangsraða eftir mikilvægi. Þáttunum voru gefnar einkunnir á bilinu 1-7, þar sem 1 er mesta hindrunin.
Meðaleinkunn þátta í starfsumhverfinu sem hindra vöxt lítilla og meðalstórra fyrirtækja:
-
Skattkerfið, 3,1
-
Hár fjármagnskostnaður, 3,1
-
Skortur á fjármagni, 3,6
-
Skortur á hæfu starfsfólki, 3,7
-
Skortur á eftirspurn, 3,8
-
Reglubyrði, 3,8
-
Gjaldeyrishöft . 5,0
Á Smáþinginu sem fram fer á morgun verða birtar frekari niðurstöður úr könnuninni þar sem koma fram horfur um fjölgun starfa hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi á næstu 3-5 árum.
Um könnunina:
Könnunin var gerð af Outcome á tímabilinu 18.-29. september 2013. Í úrtaki var 1.691 lítið og meðalstórt fyrirtæki (með færri en 250 starfsmenn) innan Samtaka atvinnulífsins og svöruðu 378.
Tengt efni: