Skaðlegar skattahugmyndir
Forsætisráðherra hefur boðað skattahækkanir á atvinnulífið,
þ.m.t. nýja skatta á borð við orku-, umhverfis- og auðlindaskatta.
Þótt ekki liggi fyrir á þessari stundu hvernig þessir skattar verði
útfærðir þá er ljóst að eðli þeirra er að skattleggja kostnað
fyrirtækjanna og skattgreiðslur verða þar með óháðar afkomu. Slík
skattheimta dregur úr samkeppnishæfni fyrirtækjanna gagnvart
erlendum keppinautum og möguleikum þeirra til þess að hafa
starfsmenn í vinnu og greiða laun. Verði þessum áformum hrint
í framkvæmd er veruleg hætta á því að þeir fjárfestingarkostir sem
erlend fyrirtæki hafa haft til skoðunar hér á landi verði
endurmetnir og hugsanlega slegnir af.
Samtök aðila í atvinnurekstri vara við skattastefnu stjórnvalda,
enda vinnur hún gegn markmiðum um endurreisn hagkerfisins, hærra
atvinnustigi og uppbyggingu sterks og sjálfbærs
velferðarkerfis.
Sjá ályktun Samtaka atvinnulífsins, aðildarfélaga þess og Viðskiptaráðs Íslands