Síminn skrifar undir Global Compact
Síminn hf. er nú meðal þeirra fyrirtækja sem hafa skrifað undir UN Global Compact - sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð fyrirtækja. "Þannig tileinkar Síminn sér tíu viðmið Global Compact um samfélagsábyrgð og mun árlega greina frá árangri sínum í verkefnum þeim tengdum," segir Fanney Karlsdóttir, sérfræðingur Símans í samfélagsábyrgð.
"Með því að skoða og greina það sem við gerum tryggjum við
að skuldbinding Símans til samfélagslegrar ábyrgðar verði
samfélaginu, viðskiptavinum fyrirtækisins og starfsfólki þess til
hagsbóta."
Samtök atvinnulífsins eru tengiliður á Íslandi við Global Compact.
Tengt efni: