Setja þarf reglur um framkvæmd húsleitar
Á fundi Verslunarráðs um húsleit hjá fyrirtækjum var rík samstaða um að brýn nauðsyn væri á setningu skýrari reglna um framkvæmd húsleitar á vegum Samkeppnis-stofnunar, t.d. í anda þeirra reglna sem gilda um haldlagningu gagna á vegum embættis skattrannsóknar-stjóra. Sumir vildu að stofnunin setti sér slíkar reglur sjálf, aðrir töldu rétt að Alþingi hefði um það forgöngu með breytingu samkeppnislaga.
Skort hefur á sjálfstætt mat dómara
Eiríkur Tómasson, lagaprófessor við Háskóla Íslands,
fjallaði í erindi sínu á fundinum m.a. um dómsúrskurði um húsleit
opinberra aðila. Sagði hann héraðsdómara oft í mjög erfiðri stöðu
því miklir rannsóknarhagsmunir gætu verið í húfi. Hins vegar hefði
skort á að héraðsdómarar legðu sjálfstætt mat á ástæður fyrir
húsleit við uppkvaðningu húsleitarheimilda, sem væri ámælisvert út
frá sjónahóli réttaröryggis. Eiríkur sagðist telja að skerpa
þyrfti á ákvæðum um húsleit í lögum um opinber mál, setja þeim
frekari skilyrði en nú er gert. Þá lagði hann áherslu á mikilvægi
þess að gætt væri meðalhófsreglu og húsleit ekki beitt nema brýna
nauðsyn bæri til og önnur úrræði ekki tiltæk.
Viðmiðunarreglur skattrannsóknarstjóra
Skúli Eggert Þórðarson, skattrannsóknarstjóri, gerði grein fyrir
reglum embættisins um framkvæmd húsleitar. Þær er annars vegar er
að finna í reglugerð en hins vegar í eigin viðmiðunarreglum
embættisins, sem m.a. eru settar í samráði við Persónuvernd hvað
varðar skoðun á tölvupósti. Meðal þess sem hann nefndi er að við
húsleit eru afrit tekin af tölvugögnum, kvittun gefin fyrir þeim
frumgögnum sem tekin eru tímabundið til athugunar, tölvupóstur ekki
skoðaður nema hann tengist sakarefni, rannsóknarþola gefið færi á
að benda á gögn sem ekki varði málið o.fl. Þá sagði hann embættið
leitast við að húsleit væri ekki móðgandi eða særandi og að
hún taki stuttan tíma. Skúli sagði það grundvallaratriði að leyndar
sé gætt um vettvangsathuganir og að langflestum málum hjá embættinu
lyki án vitneskju fjölmiðla.
Umfjöllun Skúla vakti mikla athygli, ekki síst þar sem engar slíkar opinberar reglur gilda um húsleitir á vegum Samkeppnisstofnunar.
Brýnt að setja Samkeppnisstofnun reglur
Gunnar Sturluson, hæstaréttarlögmaður hjá Logos lögmannsstofu,
fjallaði um húsleit af hálfu samkeppnisyfirvalda. Hann sagðist
telja afar brýnt að settar yrðu reglur um framkvæmd húsleitar, líkt
og embætti skattrannsóknarstjóri hefur gert. Gunnar sagðist telja
að Samkeppnisstofnun ætti að hlutast til um að slíkar reglur
yrðu settar, en á fundinum kom hins vegar fram það sjónarmið að
eðlilegra væri að Alþingi hefði forgöngu um breytingu á
samkeppnislögum, þar sem slíkar reglur yrðu m.a. settar í lög.
Aðspurður sagðist Eiríkur Tómasson a.m.k. telja rétt að löggjafinn
legði línurnar í þeim efnum og sagði viðmiðunarreglur
skattrannsóknarstjóra til fyrirmyndar.
Glærur
ræðumanna af fundinum er að finna á vef Verslunarráðs
Íslands.
Skýrsla Samtaka atvinnulífsins
Samtök atvinnulífsins hafa í ítarlegri skýrslu borið íslensku
samkeppnislögin saman við samkeppnislög nágrannaríkjanna og við
Evrópuréttinn, og gert tillögur til úrbóta.
Skýrsluna má nálgast hér (á pdf-sniði).