Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld axla ábyrgð - kjarasamningar gilda áfram
Framkvæmdastjórn SA hefur í dag lagt mat á aðgerðir stjórnvalda í átta liðum, sem að umfangi nema 25 milljörðum króna, til þess að koma til móts við íslenskt atvinnulíf vegna áhrifa kórónukreppunnar. Framkvæmdastjórnin tók afstöðu til tveggja kosta:
- Atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna um framhald eða uppsögn Lífskjarasamningsins.
- Áframhald samningsins að teknu tilliti til aðgerða stjórnvalda. Þar vega þyngst lækkun tryggingagjalds, aðrar skattalegar ívilnanir og beinir styrkir til fyrirtækja sem orðið hafa fyrir algerum tekjubresti vegna kreppunnar.
Heildarkostnaður fyrirtækja á almennum vinnumarkaði vegna launahækkunar 1. janúar næstkomandi nemur 40-45 milljörðum króna á ársgrundvelli og koma aðgerðir stjórnvalda til með að milda þau áhrif. Eftir sem áður munu launahækkanirnar veikja stöðu atvinnulífsins og mörg fyrirtæki þurfa að bregðast við þeim kostnaði.
Framkvæmdastjórn SA telur sættir á vinnumarkaði mikilvægar og vill stuðla að þeim. Þær verða þó ekki keyptar á hvaða verði sem er. Verkalýðsforystan hefur því miður ekki verið tilbúin til viðræðna um aðgerðir til að bregðast við forsendubresti í atvinnulífinu.
Hugmyndum SA um
- frestun launahækkana og lengingu kjarasamnings sem henni nemur,
- tímabundna lækkun á framlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóði og
- tímabundna frestun á endurskoðun kjarasamningsins
hefur öllum verið hafnað umræðulaust.
Sú staða þvingaði Samtök atvinnulífsins til að leita samstarfs við stjórnvöld um mótun sameiginlegra viðbragða við gerbreyttri stöðu atvinnulífsins frá því þegar Lífskjarasamningurinn var undirritaður fyrir rúmu ári síðan. Yfirlýsingin ber vitni um sameiginlega ábyrgð SA og stjórnvalda og vilja til þess að leiða samfélagið í gegnum kreppuna.
Að ofangreindu virtu er það samhljóða ákvörðun framkvæmdastjórnar SA að Lífskjarasamningurinn gildi áfram. Atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna SA um uppsögn kjarasamninga fer því ekki fram.
Hér fylgir undirrituð yfirlýsing framkvæmdastjórnar SA.