Samtök atvinnulífsins leita að lögfræðingi til starfa á skrifstofu samtakanna
Starfið er krefjandi og fjölbreytt og felur í sér gerð og túlkun kjarasamninga, lögfræðilega ráðgjöf og þjónustu við aðildarfyrirtæki SA, einkum á sviði vinnuréttar, auk málflutnings f.h. samtakanna eða aðildarfyrirtækja þeirra. Í starfinu felst einnig gerð umsagna um þingmál, þátttaka í undirbúningi stefnumótunar samtakanna í fjölda mikilvægra málaflokka og aðkoma að alþjóðlegu samstarfi.
Á vinnumarkaðssviði samtakanna starfa sex lögmenn. Leitað er að öflugum einstaklingi með embættis- eða masterspróf í lögfræði, nokkra starfsreynslu úr atvinnulífinu eða viðeigandi starfsreynslu á öðrum vettvangi og/eða viðbótarnám sem nýtist í starfi. Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á vinnurétti og lögmannsréttindi.
Upplýsingar veita Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA s. 821-0019 og Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, s. 821-0020.
Umsóknir berist á skrifstofu SA í Húsi atvinnulífsins,
Borgartúni 35 Reykjavík eða í tölvupósti á ragnar@sa.is.
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst nk.

Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök íslensks atvinnulífs og málsvari atvinnurekenda í hagsmunamálum þeirra. Samtökin hafa innan sinna vébanda átta aðildarfélög sem starfa á grunni atvinnugreina. Aðild að SA eiga um um 2.000 smá og stór fyrirtæki þar sem starfa um 55.000 starfsmenn eða um helmingur launamanna á almenna vinnumarkaðinum á Íslandi.
Hjá SA starfa 19 starfsmenn sem búa yfir margvíslegri
sérfræðiþekkingu og sinna m.a. vinnumarkaðs-, efnahags-, skatta-,
umhverfis-, samkeppnis- og menntamálum auk samstarfs við stjórnvöld
og setu í margvíslegum stjórnum og nefndum, m.a. samningahópum
vegna aðildarumsóknar Íslands að ESB. SA taka þátt í alþjóðlegu
samstarfi atvinnurekenda en samtökin reka einnig skrifstofu í
Brussel.