Samræming vinnu og einkalífs: viðurkenning
Í tengslum við ráðstefnu um samræmingu vinnu og einkalífs 10.
nóvember nk. á hótel Nordica, verður veitt viðurkenning fyrir
framlag sem stuðlar að samræmingu vinnu og einkalífs í orði og
verki. Tekið er á móti ábendingum vegna hennar til 31.
október og tekið skal fram að senda má inn ábendingar um
eigin vinnustað. Sjá nánar á
vef hins gullna jafnvægis.