Samræming vetrarfrídaga
Fræðsluráð Reykjavíkur hefur samþykkt að samræma vetrarfrí í grunnskólum borgarinnar frá og með næsta skólaári. Með ákvörðuninni er að sögn verið að koma til móts við óskir fjölmargra aðila, þ.á m. Samtaka atvinnulífsins. Jafnframt hefur fræðsluráð samþykkt að fara fram á það við leikskólaráð að tilnefndur verði starfshópur sem hafi það að markmiði að samræma starfsdaga á milli grunn- og leikskóla innan hverfa borgarinnar.
Jákvætt skref
Það er vissulega fagnaðarefni að fræðsluráð Reykjavíkur skuli reyna
að koma til móts við óskir foreldra og atvinnulífs. Hvað varðar þá
samræmingu á starfsdögum grunn- og leikskóla borgarinnar innan
hverfa borgarinnar, sem fræðsluráð hefur óskað samráðs um við
leikskólaráð, þá hafa Samtök atvinnulífsins farið fram á slíka
samræmingu sem algert lágmarkstillit við fjölskyldur og atvinnulíf.
Það hefur verið með ólíkindum að fylgjast með grunnskólum og
leikskólum loka sitt hvora dagana í jafnvel sömu vikunni innan
hverfa.
Vetrarfrí voru ákveðin án nokkurs samráðs
Varðandi hins vegar samræmingu vetrarfrísins í grunnskólum
borgarinnar hafa SA í sjálfu sér ekki óskað eftir henni. Samtökin
hafa látið það frá sér fara að þau væru reiðubúin að taka þátt í
samráði um skipan þessara mála, m.a. með það að leiðarljósi að
stuðla að því að þessi vetrarfrí valdi sem minnstri röskun fyrir
atvinnulífið. Þróun í átt til almennrar orlofstöku tiltekna daga að
vetri hefur verið nefnd í þessu sambandi, líkt og þekkist sums
staðar í nágrannalöndum okkar. Hins vegar hefur ekkert samráð verið
haft við SA um þessar útfærslur sem nú eru kynntar. Mun alvarlegra
er þó að sjálf ákvörðunin um að taka upp vetrarfrídaga í
grunnskólum á sínum tíma var tekin án alls samráðs við atvinnulífið
í landinu.
Munu áfram valda röskun
Það er ljóst að vetrarfrídagar munu hér eftir sem hingað til valda
mikilli röskun fyrir fjölmargar fjölskyldur og vinnustaði, enda
þannig staðið að innleiðingu þessa nýmælis að það kom umhverfi
skólanna algerlega í opna skjöldu. Þróunin verður sennilega sú að
fólk mun í vaxandi mæli taka hluta síns orlofs á þessum tíma og
hugsanlegt er að sú þróun verði smám saman til þess að draga úr
þessari röskun þar sem fyrirtæki muni bregðast við með því að
lágmarka starfsemi þessa daga. Einfaldast væri þó að leggja af
vetrarfrí grunnskólanna.