Samorka: Miklar fjárfestingar framundan
Í ályktun aðalfundar Samorku sem fram fór 22. febrúar er fjallað um þær miklu fjárfestingar sem framundan eru við flutningskerfi raforku og minnt á að allar ákvarðanir um að fara leiðir sem fela í sér tugi milljarða króna í viðbótarkostnað munu óumflýjanlega endurspeglast í hærri reikningum til fyrirtækja og heimila. Þá hvetur aðalfundur Samorku til víðtækrar og opinnar umræðu um leiðir til hámörkunar á arðsemi og verðmætasköpun af sölu endurnýjanlegrar orku þar sem Ísland býr yfir gríðarlegum tækifærum. Loks lýsir fundurinn vonbrigðum með niðurstöðu Alþingis um rammaáætlun.
Ályktun aðalfundar Samorku:
Miklar fjárfestingar framundan -
hámörkun arðsemi
Miklar fjárfestingar eru framundan við
flutningskerfi raforku, sem þörf er á að efla og endurnýja. Á sama
tíma hafa komið fram kröfur um að farin verði leið jarðstrengja í
stað loftlína, sem á svo hárri spennu er alla jafna miklum mun
dýrari framkvæmd. Aðalfundur Samorku minnir á að verulegur
kostnaður við nauðsynlega endurnýjun flutningskerfisins birtist í
reikningum til heimila, fyrirtækja og stofnana. Allar ákvarðanir um
að fara leiðir sem fela í sér tugi milljarða króna í
viðbótarkostnað munu óumflýjanlega endurspeglast í hærri reikningum
til sömu aðila.
Þá hvetur Samorka til þess að hérlendis fari fram víðtæk og opin
umræða um leiðir til hámörkunar á arðsemi og verðmætasköpun af sölu
endurnýjanlegrar orku. Athygli vekur að Norðmenn telja sín tækifæri
af sölu endurnýjanlegrar orku jafn verðmæt og af sölu á olíu, en
hérlendis er orkugetan í endurnýjanlegri orku þreföld á hvern íbúa
miðað við Noreg. Íslendingar búa því að gríðarlegum tækifærum á
þessu sviði.
Vonbrigði með rammaáætlun
Aðalfundur Samorku lýsir yfir vonbrigðum með niðurstöðu Alþingis
um rammaáætlun, sem víkur í veigamiklum atriðum frá faglegri
niðurstöðu verkefnisstjórnar. Margir hagkvæmustu og best rannsökuðu
orkukostirnir, sem verkefnisstjórn raðaði ofarlega út frá
sjónarhorni nýtingar, höfnuðu ýmist í biðflokki eða verndarflokki.
Vandséð er að sátt geti orðið um þessa niðurstöðu, að mati
Samorku.