Samkeppnishæfni þjóða og sóknarfæri
Hagfræðideild Háskóla Íslands efnir til morgunfundar um samkeppnishæfni þjóða föstudaginn 6. júní, hvernig hún er mæld og hvernig þjóðir geti aukið samkeppnishæfni sína. Xavier Sala-i-Martin mun fjalla um mælikvarða á samkeppnishæfni þjóða en hann er prófessor í þjóðhagfræði við Columbia háskóla í New York. Xavier gegnir ýmsum ráðgjafastörfum, hann er t.a.m. ráðgjafi World Economic Forum í Davos. Hann hefur einnig unnið við mælingar á samkeppnishæfi þjóða og komið að ritstjórn Global Competitiveness Report.
Í fyrirlestri sínum mun Xavier fjalla sérstaklega
um aðferðafræði World Economic Forum við
mælingar á samkeppnishæfni. Hann mun fjalla um samkeppnisstöðu
efnahagslífsins á Íslandi og langtímahorfur auk þess að beina
sjónum að því á hvaða sviðum Ísland geti aukið samkeppnishæfni sína
út frá viðmiðum World Economic Forum.
Allir velkomnir - morgunkaffi frá kl. 8:00.
Fundurinn hefst kl. 8:30 og verður lokið kl. 10:00. Fundurinn fer fram í stofu HT 105 á Háskólatorgi HÍ - föstudaginn 6. júní.
Stuðningsaðilar: Forsætisráðuneytið, Hollvinafélag viðskipta- og hagfræðideildar HÍ, Samtök atvinnulífsins og Norðurál.
Sjá nánar:
Viðtal við Xavier Sala-i-Martin um niðurstöður WEF á samkeppnishæfni þjóða 2007