Samkeppniseftirlitið fjallar um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja
Samkeppniseftirlitið hefur birt umræðuskjal um banka og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja og óskað umsagnar SA um málið. Aðildarfyrirtækjum SA gefst jafnframt kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Í umræðuskjalinu er fjallað um skuldavanda íslenskra fyrirtækja og samkeppnisleg álitaefni tengd honum. Frestur til að skila athugasemdum er til 8. janúar 2010.
Hægt er að koma athugasemdum og sjónarmiðum á framfæri með tölvupósti beint á Samkeppniseftirlitið (samkeppni@samkeppni.is) eða með tölvupósti til SA sem nú vinnur að umsögn um málið (gudlaugur@sa.is) - eigi síðar en 8. janúar nk.
Í fréttatilkynningu Samkeppniseftirlitsins frá 8. desember segir m.a.:
"Samkeppniseftirlitið setur fram, í 17 tölusettum liðum, kjarnasjónarmið sem það telur að hafa eigi að leiðarljósi við endurskipulagningu atvinnufyrirtækja. Dreginn er lærdómur af reynslu annarra ríkja af áþekkum álitaefnum. Jafnframt er gefið yfirlit yfir það hvernig framangreind þátttaka bankanna á samkeppnismörkuðum horfir við samkeppnislögunum, hvernig ríkisstyrkjareglur tengjast viðfangsefninu og hvernig brugðist hefur verið við málum af þessu tagi hingað til.
Umræðuskjalinu er m.a. ætlað að draga fram hversu mikilvægt það er að hagsmunir neytenda og samfélagsins af virkri samkeppni séu hafðir að leiðarljósi umfram sérhagsmuni tiltekinna fyrirtækja. Í opinberri umfjöllun um endurskipulagningu fyrirtækja hefur nær einhliða verið fjallað um stöðu einstakra fyrirtækja sem nú sjá fram á samkeppni við fjárhagslega endurskipulögð fyrirtæki. Sjónarmið þeirra skipta vissulega máli þegar endurskipulagning fer fram, en mega ekki vera ráðandi. Einkum þarf að líta til hagsmuna samfélagsins og neytenda af virkri samkeppni.
Á meðal þeirra 17 kjarnasjónarmiða sem fram koma í skjalinu (2. kafla) má nefna eftirfarandi:
-
Einungis á að koma þeim fyrirtækjum til aðstoðar, sem eiga sér eðlilegar rekstrarlegar forsendur en forðast ber að endurreisa eða halda gangandi óhagkvæmum fyrirtækjum.
-
Það er neytendum og atvinnulífinu til hagsbóta að bankar afskrifi skuldir eða á annan hátt dragi úr skuldabyrði rekstrarhæfra fyrirtækja. Beiting samkeppnislaga á ekki að vinna gegn þessu.
-
Bankar verða að gera skýra arðsemiskröfu til endurskipulagðra fyrirtækja og gæta verður fyllsta aðhalds um arðsemi.
-
Draga þarf úr hættunni á því að of mikil skuldabyrði fyrirtækja sé sótt í vasa neytenda í formi hærra verðs.
-
Bankar eiga að selja endurskipulögð fyrirtæki svo fljótt sem auðið er í gagnsæju ferli, eftir því sem kostur er. Skráning í kauphöll er vænlegur kostur.
-
Samkeppnislögin veita næga vernd að því undanskildu að í þeim skortir heimildir til að skipta upp fyrirtækjum."
Samtök atvinnulífsins munu birta umsögn sína um málið þegar hún verður tilbúin í upphafi nýs árs.
Sjá nánar: