SA leita að framtíðarfólki
Samtök atvinnulífsins leita að ungu fólki í námi sem vill leggja sitt af mörkum við að auka samkeppnishæfni lands og þjóðar. Ef þú býrð yfir hugmynd sem getur bætt bætt hag Íslendinga eða vilt greina sóknarfæri á sviði atvinnumála, efnahagsmála, vinnumarkaðsmála eða velferðarmála, þá viljum við heyra í þér. Fyrir réttu verkefnin eru í boði styrkir og hugsanlega vinnuaðstaða í Húsi atvinnulífsins ásamt samstarfi við starfsmenn SA.
Framsýnir og áhugasamir skili inn hugmynd ásamt nánari upplýsingum á einu A4 blaði til SA fyrir 7. júní næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Hörður Vilberg hjá SA í síma 591-0005.