Ryðjum hindrunum úr vegi: Hádegisfundur í Hörpu 26. september
Samtök atvinnulífsins efna til opins umræðufundar um hvernig
nýta megi sóknarfæri í atvinnulífinu, mánudaginn 26. september í
Hörpu - Silfurbergi á 2. hæð. Fundurinn hefst kl. 12 og verður
lokið ekki síðar en 13.30. Yfirskrift fundarins er Ryðjum
hindrunum úr vegi - atvinnulíf í uppnámi.
SA hvetja alla áhugamenn um eflingu atvinnulífsins til að mæta en
löngu tímabært er að ryðja ýmsum hindrunum úr vegi og hefja
kröftuga atvinnusókn til að kveða niður atvinnuleysið, auka tekjur
fólks, fyrirtækja og hins opinbera. Einungis kröftugt
atvinnulíf leggur grunn að sjálfbærri velferð.
Frummælendur eru Grímur Sæmundsen, varaformaður Samtaka atvinnulífsins, Kolbeinn Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Ístaks, Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu, Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ - Landssambands íslenskra útvegsmanna og Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Fundarstjóri er Vilmundur Jósefsson, formaður
Samtaka atvinnulífsins.
SMELLTU TIL AÐ SKRÁ ÞIG
Ryðjum hindrunum úr vegi:
Af nægu er að taka, í Fréttablaðinu kemur t.d. fram að Ísland fær verstu einkunn allra vestrænna ríkja í nýju áhættumati tryggingafyrirtækisins Aon sem gert er fyrir fjárfesta. Þar segir að áhætta fylgi fjárfestingum hér á landi vegna hættu á pólitískum afskiptum, verkföllum, óeirðum og jafnvel greiðsluþroti íslenska ríkisins. Lönd sem lenda í sama áhættuflokki og Ísland eru til dæmis Egyptaland, Rússland, Kína, Tyrkland, Lettland og Albanía. Lönd sem talin eru skárri til fjárfestinga eru til dæmis Mexíkó, Marokkó, Túnis, Búlgaría og Litháen.