Rödd atvinnulífsins í vefsjónvarpi SA
Á vef Samtaka atvinnulífsins má nú horfa á fjölmörg sjónvarpsinnslög undir yfirskriftinni Rödd atvinnulífsins. SA brugðu sér nýverið af bæ og heimsóttu félagsmenn og frumkvöðla víðs vegar um landið til að skoða fjölbreytta framleiðslu og verðmætasköpun í öllum regnbogans litum. Afraksturinn má sjá á vef SA - á slóðinni www.sa.is/tv - en innslögin voru birt dagana fyrir og eftir aðalfund SA sem fram fór þann 21. apríl undir yfirskriftinni ÍSLAND AF STAÐ!
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SJÁ YFIRLIT YFIR INNSLÖGIN

M.a. er fjallað um nýja aflþynnuverksmiðju Becromal í Krossanesi. Heildarfjárfesting nemur um 11 milljörðum króna, 100 ný störf verða til og árlegar útflutningstekjur munu verða á bilinu 12-14 milljarðar þegar framleiðslan er komin í fullan gang. Verið er að byggja verksmiðjuna í áföngum.