Rjúfum kyrrstöðuna: Samantekt frá fundi SA 11.11.11
Samtök atvinnulífsins gáfu út nýtt rit föstudaginn 11. nóvember um hvernig rjúfa má kyrrstöðuna á Íslandi og bæta lífskjörin. Kynning á helstu atriðum þess fór fram á opnum fundi SA í Hörpu en um 200 manns úr íslensku atvinnulífi sóttu fundinn auk þess sem fjölbreyttur hópur stjórnenda steig á stokk og fjallaði um skýrslu SA og efni hennar. Samantekt frá fundinum hefur nú verið birt á vef SA.
Vilmundur Jósefsson, formaður SA, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA kynntu rit SA en auk þeirra tóku til máls Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku, Björk Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka, Dagný Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Bláa Lónsins, Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda, Finnur Árnason, forstjóri Haga og Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðideildar Eimskips.
Nýtt rit SA má nálgast hér: Rjúfum kyrrstöðuna. Leiðir til betri lífskjara (PDF)
Umfjöllun um erindi frummælenda má nálgast hér að neðan:

Formaður SA: Rauða ljósið hefur logað of lengi á Íslandi

Framkvæmdastjóri SA: Þurfum að gera miklu betur

Forstjóri Ölgerðarinnar: Fáránlegt vaxtastig hamlar fjárfestingu og hækkar verðlag

Stjórnarformaður HS Orku: Öflug nýsköpun í íslenskum orkuiðnaði

Björk Þórarinsdóttir: Eiginfjárstaða bankanna sterk

Framkvæmdastjóri Bláa Lónsins: Byggja þarf upp hvetjandi umhverfi fyrir fjárfestingar og eyða óvissu

Framkvæmdastjóri Suðurverks: Enginn verksamningur í hendi og ástandið svart

Forstjóri HB Granda: Sjávarútvegurinn getur leikið lykilhlutverk í endurreisn efnahagslífsins

Forstjóri Haga: Kjötskortur reyndist íslenskum neytendum dýr

Heiðrún Jónsdóttir: Traustur hlutabréfamarkaður mikilvægur í uppbyggingunni