Rangfærslur um tryggingamál sjómanna
Í frétt í Morgunblaðinu þriðjudaginn 3. júní sl. er greint frá
því að Páll Steingrímsson, formaður Sjómannadagsráðs Akureyrar,
hafi haldið því fram í ávarpi sínu á sjómanna-daginn að í
tryggingamálum standi sjómenn flestum öðrum starfsstéttum langt að
baki. Sannleikurinn er hins vegar sá að slysatrygging sjómanna er
mun betri en almennt gildir um aðra launþega í landinu.