Ráðstefna um þjónandi forystu
Föstudaginn 14. júní fer fram ráðstefna um þjónandi forystu í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Þar verður rætt um nýjar leiðir til að efla samstöðu og árangur á vinnustöðum og í samfélaginu. Fjölbreyttur hópur erlendra og íslenskra sérfræðinga stígur á stokk og ræðir málefnið út frá ólíkum sjónarhornum auk þátttakenda.
Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast hér að neðan en um er að ræða fjórðu ráðstefnuna á vegum Þekkingarseturs um þjónandi forystu. Styrktaraðilar ráðstefnunnar eru Íslandsbanki, Samtök atvinnulífsins og Brim.
Nánari upplýsingar og skráning á vef Þjónandi forystu. Þátttökugjald er kr. 20.000.
Dagskrá:
Kl. 8:30 - Ráðstefnan sett
Dr. Margaret Wheatley: Lykilfyrirlestur: Leadership in Turbulent Times: From Hero to Host. Ágrip fyrirlesturs (pdf).
Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka: Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera fremst í þjónustu, hvernig nær bankinn því markmiði?
Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir, skólahjúkrunarfræðingur og höfundur: Samskiptaboðorðanna. Samskiptaboðorð þjónandi leiðtoga.
Tómas Guðbjartsson prófessor og hjartaskurðlæknir Landspítala: Menntun og rannsóknir ungs fólks - forsendur nýrrar þekkingar.
Kl. 11:45 - Hádegisverður og samtal í hópum
Dr. Carolyn Crippen: Lykilfyrirlestur: Seven Pillars of Servant Leadership: An Action Plan. Ágrip fyrirlesturs (pdf).
Sigrún Gunnarsdóttir, dósent Háskóla Íslands: Rannsóknir hér á landi um þjónandi forystu.
Þóra Hjörleifsdóttir, deildarstjóri við Síðuskóla Akureyri: Stjórna skólastjórnar, á Norðurlandi eystra, skólum sínum í anda þjónandi forystu?
Hulda Rafnsdóttir, hjúkrunarfræðingur og gæðastjóri á Sjúkrahúsinu á Akureyri: Árangursrík stjórnun og forysta innan heilbrigðisþjónustunnar
Charlotte Böving, leikkona og leikstjóri. Þjónandi forysta í leikhúsinu.
Jón Gnarr, borgarstjóri: Kjötiðnaðarmaður, leigubílstjóri, leikari og borgarstjóri.
Kl. 16 - Ráðstefnulok
Um er að ræða fjórðu ráðstefnuna á vegum Þekkingarseturs um þjónandi forystu sem starfar samkvæmt samningi við Greenleaf Center for Servant Leadership í Bandaríkjunum.