Ráðstefna um stjórnarhætti fyrirtækja í dag - 25. maí
Þriðjudaginn 25. maí standa Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX á Íslandi og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands fyrir ráðstefnu um stjórnarhætti. Markmiðið með ráðstefnunni er að minna á mikilvægi góðra stjórnarhátta innan fyrirtækja og stofnana hér á landi, en ofangreindir aðilar gáfu á síðasta ári út nýja og endurbætta útgáfu af leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja.
Ráðstefnan fer fram á Grand Hótel Reykjavík, hún hefst klukkan 12 og stendur til 13.45.
Ræðumenn á ráðstefnunni verða:
-
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar - Stjórnarhættir fyrirtækja: hvað hefur verið gert?
-
Chris Pierce, forstjóri Global Governance Services Ltd. - Past, present and future corporate governance lessons
-
Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar - Hlutverk og starfshættir stjórna: erum við að gera réttu hlutina?
Eftir erindi ræðumanna verða pallborðsumræður og þar sem m.a. verður rætt með hvaða hætti hægt er að koma að úrbótum í stjórnarháttum fyrirtækja. Í pallborðinu munu sitja:
-
Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta
-
Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri samskipta- og viðskiptaþróunar Auðar Capital
-
Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands
-
Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
Frekari upplýsingar um rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands má nálgast hér.
Ráðstefnan fer fram á Grand Hótel Reykjavík (Gullteigur A), hún hefst klukkan 12 og stendur til 13.45.
Verð er krónur 1.500 og er hádegisverður
innifalinn.
Skráning hér.