Ráðstefna um öryggis- og heilbrigðismál á vinnustöðum
Fimmtudaginn 7. desember efnir Græni krossinn til ráðstefnu um öryggis- og heilbrigðismál á vinnustöðum og í samfélaginu. Græni Krossinn eru samtök sem hafa það stefnumið að stuðla að auknu öryggi og heilbrigði á vinnustöðum og í samfélaginu. Leitast verður við að svara spurningum um hvort og hvernig við getum aukið árangur okkar í heilbrigðis- og öryggismálum þannig að starfsfólk skili sér ávallt heilt heim. Ráðstefnan er haldin á Hótel Nordica í sal A og B og stendur frá kl. 9:00 til 16:00. Fundarstjórar eru Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar í Kópavogi og Stefanía Katrín Karlsdóttir, bæjarstjóri Árborgar.
Dagskrá ráðstefnunnar:
Er hægt að skapa slysalausan vinnustað?
8:30-9:00 Morgunverður/Skráning
Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra
Gestur Pétursson, kynnir Græna krossinn
Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins
Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar
Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma
Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar
Kevin Berg, aðstoðarforstjóri Bechtel International
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, lektor í viðskipta- og hagfræðid. HÍ
Warren McKenzie, verkefnisstjóri framkvæmda hjá Alcoa
Joe Wahba, framkvæmdastjóri Fjarðaálsverkefnisins
Andy Cameron, staðarstjóri Fjarðaálsverkefnisins
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi
Pallborðsumræður
Ráðstefnan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir og þátttakendum að kostnaðarlausu. Boðið verður upp á hádegisverð.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á skraning@inpro.is fyrir miðvikudaginn 6. desember.