Pétur Reimarsson til SA
Pétur Reimarsson efnaverkfræðingur hefur verið ráðinn
verkefnastjóri umhverfismála hjá Samtökum atvinnulífsins. Pétur
lauk doktorsprófi frá Tækniháskólanum í Lundi 1979 og starfaði hjá
Rannsóknaráði ríkisins og Vinnueftirliti ríkisins að loknu námi.
Hann var framkvæmdastjóri Sæplasts hf. á árunum 1984-1991 og Árness
hf. á árunum 1992-1997. Frá árinu 1998 hefur hann starfað sem
sjálfstæður ráðgjafi. Pétur hefur setið í stjórnum fjölmargra
fyrirtækja. Verkefni hans hjá SA munu m.a. snúa að
umhverfismálum, vinnuverndarmálum, meðferð hættulegra efna og
auðlindanýtingu.