Óvissu verði eytt
Á fundi nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins sem haldinn var í dag var áhersla lögð á að stjórnmálalegri óvissu verði eytt sem fyrst og að stefna landsins verði mótuð til framtíðar. Verulegur árangur í niðurskurði ríkisútgjalda sé forsenda þess að landið komist hratt upp úr öldudalnum.
Stjórn SA leggur áherslu á að unnið verði að samstöðu um víðtækan
þríhliða stöðugleikasáttmála milli aðila vinnumarkaðar og
stjórnvalda. Fram komu áhyggjur af því að staða atvinnulífsins
kynni að vera verri en áður hefur komið fram og hvatti stjórnin til
þess að fyrirliggjandi upplýsingar verði lagðar fram sem fyrst.
Atvinnulífið væri í gríðarlegri óvissu í fjötrum ofurvaxta og áform
um hægfara vaxtalækkanir væru óásættanleg. Ákvörðunarfælni og
sífelld frestun mikilvægra ákvarðana skapi enn frekari
vandamál.
Á fundinum í dag kom fram að tryggja þurfi jafnræði og eðlileg
samkeppnisskilyrði í framhaldi af því að vikið hafi verið frá
þeirri meginreglu að fyrirtæki í rekstrarvanda fari
í gjaldþrot. Nýtt umhverfi með ríkisbönkum skapi mikla óvissu
fyrir fyrirtæki í samkeppnisrekstri. Samkeppnisumhverfið sé afar
óljóst á ýmsum mörkuðum sem einkennist af óeðlilegum
undirboðum. Ríkisbankar skapi hættu á að samkeppnishamlandi aðstoð
við fyrirtæki í samkeppnisrekstri verði viðvarandi.
Stjórn Samtaka atvinnulífsins lýsti andstöðu sinni við áform
stjórnarflokkanna um eignaumsýslufélag á vegum ríkisins vegna
þjóðhagslegra mikilvægra fyrirtækja. Í stað þess beri að stuðla að
fjárfestingafélagi á vegum lífeyrissjóða og annarra fjárfesta sem
með faglegum og gegnsæjum hætti geti fjárfest með arðsemi að
leiðarljósi í fyrirtækjum, sem tapað hafi eigin fé sínu, og séu
tímabundið í eignarhaldsfélögum á vegum bankanna. Óvissa um afdrif
framvirkra samninga lífeyrissjóðanna komi þó í veg fyrir að slíkt
fjárfestingafélag komist á laggirnar og eru stjórnvöld hvött til
þess að höggva á þann hnút.
Stjórn SA telur gjaldeyrishöftin afar skaðleg því þau dragi úr líkum á erlendri fjárfestingu og takmarki möguleika innlendra fyrirtækja á því að hasla sér völl erlendis. Hraða þurfi áformum um afnám þeirra.
Þá var áréttað í umræðum að reglur á sviði umhverfismála taki stöðugum breytingum og ógegnsæi ríki varðandi framkvæmd þeirra sem fæli erlenda fjárfesta frá landinu. Pólitískur stöðugleiki þurfi að ríkja á því sviði sem öðrum.