Össur hf. skrifar undir Global Compact S.Þ.
Össur hf. hefur skrifað undir Global Compact - sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð. Össur gerðist aðili að Global Compact undir lok síðasta árs. Á undanförnum árum hefur Össur hf. lagt aukna áherslu á samfélagsábyrgð í rekstri sínum, m.a. með verkefni sem tengist samskiptum við birgja í Asíu ásamt innleiðingu á umhverfisstjórnunarkerfi (ISO14001). Þátttakan fellur vel að meginstefnu Össurar um að bæta lífsgæði þeirra sem þurfa á vörum fyrirtækisins að halda auk þess að vera í takt við gildi fyrirtækisins, sem eru hagsýni, heiðarleiki og hugrekki.

Aukin vitund um samfélagsábyrgð er meðal markmiða Global Compact. Að mati Össurar er mikilvægt að auka umræðu og þekkingu á samfélagsábyrgð á Íslandi og því til stuðnings tók Össur þátt í að stofna Festu miðstöð um samfélagsábyrgð og fulltrúi fyrirtækisins á sæti í stjórn samtakanna. Meginmarkmið Festu er að stuðla að vitundarvakningu og hvetja til rannsókna á málefnum samfélagsábyrgðar á Íslandi.
Frekari upplýsingar eru aðgengilegar á heimasíðu Össurar
Samtök atvinnulífsins eru tengiliður á Íslandi við Global Compact.
Tengt efni: