Orlofsuppbót 2017
Samkvæmt almennum kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins greiðist orlofsuppbót þann 1. júní ár hvert. Full orlofsuppbót er kr. 46.500.
Við útreikning orlofsuppbótar er litið til starfstíma og starfshlutfalls á síðasta orlofsári, þ.e. frá 1. maí 2016 til 30. apríl 2017, og telst fullt ársstarf í þessu sambandi 45 vikur eða meira fyrir utan orlof. Ekki er greitt orlof ofan á orlofsuppbót.
Nánari upplýsingar er að finna á vinnumarkaðsvef SA sem er opinn félagsmönnum samtakanna.