Opnir fundir SA á Egilsstöðum og Reyðarfirði
Á næsta ári verður samið um lífskjör Íslendinga í fjölda kjarasamninga. Eyjólfur Árni Rafnsson formaður SA, Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA og Ásdís Kristjánsdóttir forstöðumaður efnahagssviðs SA rýna í stöðu og horfur á vinnumarkaði og ræða svigrúm til launahækkana næstu árin á opnum fundum hringinn í kringum landið.
Boðið verður til opinna funda á Austurlandi í byrjun október:
- Á Egilsstöðum á Icelandair hótel Héraði miðvikudaginn 3. október kl. 12-13.30
- Á Reyðarfirði í Safnaðarheimilinu miðvikudaginn 3. október kl. 16.30-18
Vinsamlegast skráið þátttöku með því að smella á viðkomandi fundarstað – boðið verður upp á létta hádegishressingu á Egilsstöðum og síðdegiskaffi á Reyðarfirði.
Tölum saman er yfirskrift fundanna og eru allir velkomnir.
Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök íslensks atvinnulífs með sex aðildarsamtökum sem starfa á grunni atvinnugreina. Yfir 2.000 fjölbreytt fyrirtæki eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins, allt frá sjálfstætt starfandi frumkvöðlum til stærstu fyrirtækja landsins. Hjá aðildarfyrirtækjum samtakanna starfa um 70% launafólks á almennum vinnumarkaði rúmlega 100 þúsund manns.
Eyjólfur Árni Rafnsson, Halldór Benjamín Þorbergsson og Ásdís Kristjánsdóttir eru á meðfylgjandi mynd. Sjáumst!