Opnað fyrir umsóknir um viðspyrnustyrki
Opnað hefur verið fyrir móttöku á umsóknum um viðspyrnustyrki vegna tekjufalls rekstraraðila á tímabilinu nóvember 2020 til og með maí 2021, borið saman við árið 2019. Þeir einstaklingar og lögaðilar sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi sem hófst fyrir 1. október 2020 og hafa orðið fyrir a.m.k. 60% tekjufalli, sem rekja má til heimsfaraldurs kórónuveiru, eiga rétt á viðspyrnustyrk úr ríkissjóði að uppfylltum ýmsum skilyrðum.
Eins og áður er sótt um í gegnum þjónustusíður umsækjenda á skattur.is. Ef umsækjandi um viðspyrnustyrk er félag (lögaðili) skráir prókúruhafi sig inn á sína þjónustusíðu og fer þannig inn á svæði félagsins. Sjálfstætt starfandi einstaklingur fer inn í umsóknina í gegnum sína eigin þjónustusíðu. Allt er þetta með sama hætti og verið hefur vegna annarra styrkumsókna.
Skilyrði fyrir viðspyrnustyrk eru nokkuð mörg og fleiri en ein leið til að reikna út bæði tekjufall, rekstrarkostnað og stöðugildi. Allt eru þetta þættir sem skipta sköpum um útreikninga á styrkjunum. Reynt er að fylla út fyrirfram allar þær upplýsingar sem Skattinum er unnt en jafnframt þurfa umsækjendur sjálfir að gefa upp tilteknar upplýsingar.
Athugið að í þetta skipti þarf að sækja um fyrir hvern almanaksmánuð í senn og verður umsækjandi að fullklára umsókn sína með rafrænni undirskrift áður en unnt er að sækja um fyrir annan mánuð. Sé t.d. sótt um fyrir nóvember 2020 þarf að fullklára þá umsókn áður en unnt er að sækja um fyrir desember 2020, o.s.frv.
Bent er á að ítarlegar leiðbeiningar er að finna á www.skatturinn.is.
Eftir að fullbúin umsókn berst Skattinum á almennt ekki að taka langan tíma að afgreiða hana. Greiðsla á að geta borist umsækjanda innan nokkurra daga. Séu á hinn bóginn einhverjir annmarkar á umsókn getur afgreiðsla tafist.
Rétt er að ítreka að umsókn er ekki fullbúin fyrr en búið er að undirrita hana með rafrænum skilríkjum en nokkur brögð hafa verið að því að dregist hefur hjá umsækjendum um aðra styrki að ganga frá þeim þætti málsins.
Hægt er að fá aðstoð við greiningu og val á úrræðum fyrir reksturinn með því að bóka tíma í rekstrarráðgjöf SA.