Opinn fundur á Akureyri um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs
Föstudaginn 12. apríl boðar vinnuhópur um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs til opins fundar fyrir hönd Velferðarráðuneytisins, Jafnréttisráðs og Jafnréttisstofu. Fundurinn fer fram á Hótel KEA á Akureyri og stendur frá klukkan 13-16. Á fundinum verður meðal annars fjallað um hvernig fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög geti bætt samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs og stuðlað að fjölskylduvænni vinnustöðum og samfélagi. Samtök atvinnulífsins eiga fulltrúa í vinnuhópnum.
Dagskrá fundarins
13:15 Fundur settur.
13:25 Þóra Kristín Þórsdóttir, aðferðafræðingur.
Kynbundin verkskipting á Íslandi.
13:45 Gyða Margrét Pétursdóttir,aðjúnkt í kynjafræði við
Stjórnmálafræðideild HÍ.
Stjórnandinn: Jákvæður með bundið fyrir bæði eða
meðvitaður bjartsýnisalki?
14:10 Erla B. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri
SÍMEY.
Hvernig standa má að fræðslu fyrir launþega og
atvinnurekendur.
14:20 Ragnheiður Eyjólfsdóttir MSc nemi í OBTM við
HR.
Fyrstu niðurstöður rannsóknar á því hvernig þátttakendum
á vinnumarkaði finnst þeim takast að samræma fjölskyldu- og
atvinnulíf.
14:40 Baldur G. Jónsson, mannauðsstjóri
Landsbankans.
Landsbankinn, - fyrirmyndar vinnustaður.
14:55 Helga Erlingsdóttir, hjúkrunarforstjóri á Hlíð
dvalarheimili aldraðra.
Listin að lifa: Samræming fjölskyldu- og
atvinnulífs.
15:15 Björn Þorláksson, faðir með meiru.
Kynhlutverkahyggja - ræður hún skörun atvinnu og
fjölskyldulífs? Nokkur orð um mun á eldavél og útigrilli.
15:30 Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri
Akureyrarbæjar.
Akureyri öll lífsins gæði, - hvað getum við gert til að
skapa fjölskylduvænna samfélag?
15:45 Þórður Kristinsson, formaður vinnuhópsins.
Kynnir greinagerð til velferðarráðherra um framkvæmd
verkefna og aðgerðir vinnuhóps um samræmingu fjölskyldu- og
atvinnulífs.
16:00 Fundi slitið.
Skráning fer fram á vef
Velferðarráðuneytisins www.vel.is/skraning