Opinberir aðilar mega ekki leiða launaþróunina
Í ræðu sinni á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins gagnrýndi Finnur Geirsson, nýendurkjörinn formaður samtakanna, hvernig hið opinbera hefur um margra ára skeið leitt launaþróun í landinu. "Hið opinbera, sem byggir á skattlagningu atvinnulífs og almennings, hefur tekið forystu um kostnaðarhækkanir í launum og öðrum starfskjörum, sem atvinnulífið getur ekki fylgt eftir. Slíkt getur ekki endað nema með ósköpum", sagði Finnur. Hann sagði auðsætt að opinberar stofnanir hefðu ekki ráðið við þá valddreifingu sem reynd hefði verið í launamálum hins opinbera á undanförnum árum.
Einkavæðing raunhæfasta lausnin
Finnur sagði það að mörgu leyti flókið viðfangsefni að samhæfa
betur þróunina á vinnumarkaðnum, en að raunhæfasta leiðin hlyti þó
að vera að fjölga vinnuveitendum á þeim sviðum sem í hlut ættu, með
einkavæðingu og með útboði á rekstrarverkefnum.
Evran kallar á samkeppnishæf
starfsskilyrði
Þá sagði Finnur menn innan Samtaka atvinnulífsins ekki á eitt sátta
um kosti aðildar að ESB. Hins vegar væri ljóst að sameiginleg mynt
fæli í sér umtalsvert hagræði fyrir þau lönd sem tekið hefðu upp
evruna. Jafnframt væri ekki um það deilt að því fylgdi töluverður
kostnaður að vera með sjálfstæðan gjaldmiðil í litlu hagkerfi.
Þessi staða gerir að sögn Finns enn ríkari kröfur til okkar
Íslendinga um að sjá svo til, að samkeppnisstaða íslenskra
fyrirtækja á heildina litið liði ekki fyrir að hér sé lítill og
hlutfallslega dýr gjaldmiðill. Nefndi Finnur m.a. frekari
skattalækkanir í því sambandi.
Þá fjallaði Finnur m.a. um nauðsyn endurskoðunar samkeppnislaga, rauða strikið í samkomulagi SA og ASÍ, mikilvægi stöðugs verðlags, glímuna við sveiflur í íslensku efnahagslífi, þörf á lagabreytingu um Atvinnuleysis-tryggingasjóð, mikilvægi sveigjanleika á vinnumarkaði, stöðu og rekstrarfyrirkomulag Íbúðalánasjóðs og fleira.