Önnur verkefni í stað veikindafjarvistar?
DA, dönsku samtök atvinnulífsins, hafa lagt til að í veikindavottorðum til atvinnurekenda taki læknar fram hvaða eða hvers konar verkefni viðkomandi starfsmenn geti ekki innt af hendi sökum veikindanna. Þannig geti atvinnurekendur hugsanlega fundið þeim önnur verkefni á meðan og þannig viðhaldið tengslum þeirra við vinnustaðinn á meðan á veikindunum stendur.
Góð reynsla í Noregi
Fyrirmyndina sækja DA til Noregs þar sem sambærilegt fyrirkomulag
var tekið upp á síðasta ári, með þríhliða samkomulagi ríkis og
aðila vinnumarkaðar, en það hefur þegar orðið til að draga úr
veikindafjarvistum. Greint var
frá norska samkomulaginu á vef SA í október sl., en miklar
veikindafjarvistir frá vinnu eru víða áhyggjuefni á
Norðurlöndunum.
Stuðningur danska alþýðusambandsins
LO, danska alþýðusambandið, hefur lýst stuðningi við tillögu DA. Í
viðtali við Politiken segir fulltrúi LO að eðli veikinda
einstaklings séu ekki lengur eitthvað sem engan annan varði, heldur
sé ekki bara í lagi heldur jákvætt að atvinnurekandinn sé jafnframt
upplýstur þar um. Þannig geti hann auðveldað starfsmanni að snúa
aftur til starfa eftir veikindi.