Ólögleg gjaldheimta og verðsamráð heilsugæslulækna?
Um helmingur heilsugæslustöðva hefur á undanförnum mánuðum hækkað gjald fyrir fjarvistarvottorð til atvinnurekenda, á grundvelli viðmiðunargjaldskrár Læknafélags Íslands sem ekki getur talist samræmast ákvæðum samkeppnislaga. Ennfremur virðist gjaldtaka stöðvanna viðhöfð án lagaheimildar og hið sama gildir um tekjur heilsugæslulækna af gjaldtökunni.
Verðsamráð
Á vegum Læknafélags Íslands var sl. vetur send út
svokölluð viðmiðunargjaldskrá vegna læknisvottorða og nær hún til
52 mismunandi tegunda læknisvottorða. Um helmingur
heilsugæslustöðva í landinu, og nær allar á höfuðborgarsvæðinu,
hafa hækkað gjaldtöku sína vegna veitingar vottorðs um fjarvistir
til atvinnurekenda - og hugsanlega fleiri vottorða - til
samræmis við viðmiðunargjaldskrána. Samtök atvinnulífsins könnuðu
gjaldtöku heilsugæslustöðvanna og er niðurstöðurnar að finna í
meðfylgjandi töflu. Samkvæmt gjaldskránni er gjald fyrir slíkt
vottorð kr. 1700, en áður mun hafa verið algengast að gjaldið næmi
kr. 1200. Ekki verður hins vegar séð að viðmiðunargjaldskrá LÍ
samræmist ákvæðum samkeppnislaga.
Gjaldtaka án lagaheimildar
Samkvæmt lögum og ákvæðum kjarasamninga geta fyrirtæki
krafið starfsmenn um vottorð vegna veikindafjarvista, enda greiði
fyrirtækið vottorðið. Ekki verður hins vegar séð að í lögum og
reglugerðum sé að finna heimildir fyrir slíkri gjaldtöku á
heilsugæslustöðvum, heldur sé eingöngu heimilt að innheimta
komugjald í slíkum tilvikum. Læknum sem reka eigin stofur er hins
vegar frjálst að ákvarða gjaldtöku vegna slíkra vottorða, en mega
þó ekki hafa verðsamráð um gjaldtökuna.
Ólöglegar tekjur heilsugæslulækna?
Svo virðist sem þetta gjald renni til heilsugæslulæknanna
sjálfra. Launakjör heilsugæslulækna eru hins vegar heildarkjör
samkvæmt úrskurði kjaranefndar, sem síðast var breytt 1. ágúst
2000. Samkvæmt úrskurðinum er ekki greitt fyrir aukaverk, nema í
tilteknum tilvikum sem fjallað er um í fylgiskjali með úrskurðinum
og ber heitið gjaldskrá heilsugæslulækna. Þar er í lið I-C fjallað
um greiðslur Tryggingastofnunar ríkisins til lækna vegna tiltekinna
vottorða, en hvergi er fjallað um önnur vottorð, svo sem vegna
fjarvista til atvinnurekenda. Ekki verður því séð að
heilsugæslulæknum sé heimilt að þiggja greiðslur fyrir útgáfu
umræddra vottorða.
Meðfylgjandi er tafla yfir gjaldtöku heilsugæslustöðva fyrir
fjarvistarvottorð.