Öflugt menntakerfi stærsta efnahagsmálið
Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands hafa gefið út rit um stöðu menntamála hér á landi og tillögur til úrbóta. Ritið ber heitið „Stærsta efnahagsmálið – Sóknarfæri í menntun“. Til að bæta lífskjör og efla enn frekar samkeppnishæfni Íslands er grunnurinn öflugt menntakerfi. Í ritinu er lýst sýn atvinnulífsins á mikilvægi menntunar og þau sóknarfæri sem í henni felast til verðmætasköpunar í hagkerfinu.
Í ritinu kemur fram að þrátt fyrir að Ísland verji hlutfallslega miklum fjármunum til menntamála stendur það höllum fæti gagnvart nágrannalöndunum í flestum lykilmælikvörðum.
Tillögum að úrbótum er skipt í þrjá kafla. Leiðir sem stuðla að auknum árangri, auknu valfrelsi og meiri ráðdeild. Í þeim er m.a. lagt til að:
- Ríki og sveitarfélög skilgreini tækifærin og áskoranir með skýrri stefnumörkun og vinni eftir markvissri aðgerðaráætlun.
- Endurgjöf og frammistöðumat til kennara verði aukið, fagleg forysta skólastjórnenda efld og farið verði í endurbætur á kennaramenn.
- Skólum og stjórnendum þeirra verði gefið aukið sjálfstæði.
- Stytting námstíma til stúdentsprófs og endurskoðun iðn- og starfsnáms verði innleidd hið fyrsta, samhliða rekstraraðhaldi til þess að ná fram betri nýtingu þeirra fjármuna sem varið er í menntakerfið.
- Ýtt undir gegnsæi og greitt aðgengi að upplýsingum um skólakerfið
Sjá nánar: