Nýjar leiðir út í heim opnast íslenskum fyrirtækjum
Íslandsstofa og systurstofa hennar í Svíþjóð, Business Sweden, hafa gert með sér samkomulag sem tryggir íslenskum fyrirtækjum aðgang að alþjóðlegu neti viðskiptafulltrúa Business Sweden. Frá þessu var greint á ársfundi Íslandsstofu fyrr í dag. Samkomulagið hefur þegar tekið gildi og má reikna með að fyrstu íslensku fyrirtækin geti notið góðs af samstarfinu innan skamms.
Alls eru 450 starfsmenn á vegum Business Sweden í 42 löndum víða um heim. Hlutverk þeirra er að styðja við framgang sænskra fyrirtækja erlendis með ýmis konar þjónustu á markaði. Með samkomulaginu verður íslenskum fyrirtækjum gert kleift að nýta sér tiltekna þjónustu eins og um sænsk fyrirtæki væri að ræða.
„Sem ráðherra utanríkisviðskipta og norrænnar samvinnu, hef ég mikla trú á gildi þess að styrkja samstarf Norðurlandanna og kynningarstarf útflutningsgreina á alþjóðlegum mörkuðum. Samstarf Íslandsstofu og Business Sweden er gott dæmi um það,“ sagði Anne Hallberg, ráðherra utanríkisviðskipta í Svíþjóð í ávarpi á ársfundinum fyrr í dag. „Það er mikilvægt að við vinnum náið saman að því að styrkja ímynd Norðurlandanna á heimsvísu. Sterk ímynd hjálpar bæði norrænum fyrirtækjum og gerir Norðurlöndin áhugaverðari valkost fyrir erlenda fjárfesta.“
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra tók undir orð Hallberg á fundinum. „Við eigum sameiginlega viðskiptahagsmuni með Norðurlöndum enda eru þar tækifæri til að nýta sameiginlega styrkleika til árangurs fyrir öll ríkin. Við höfum átt mjög gott samstarf við Svía á sviði utanríkisviðskipta um langt skeið. Rætur þessa samkomulags liggja í samstarfi Norðurlandanna um rekstur nýsköpunarhúsa í Bandaríkjunum og Asíu, sem er annað skínandi dæmi um kosti norræns samstarfs. Sameinuð erum við öflugri.“
Auk þess að opna dyr fyrir íslensk fyrirtæki út í heim felst í samkomulaginu að stofurnar munu vinna saman í markaðs- og kynningarmálum í sértækum verkefnum þar sem þau eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta.
Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu segir samkomulagið skapa nýja möguleika fyrir íslensk fyrirtæki til þess að hasla sér völl í útlöndum. „Sú aðstoð sem þeim býðst getur stytt leið þeirra á markað og auðveldað þeim að koma undir sig fótunum í ókunnu umhverfi.“
Frederik Faxe, framkvæmdastjóri Business Sweden segir tilvalið að hleypa samstarfinu af stað nú þegar markaðir eru við það að opnast á ný og fyrirtæki takast á við nýtt viðskiptalandslag eftir heimsfaraldur. „Þetta eru kjöraðstæður til þess að hleypa af stokkunum samstarfi Business Sweden og Íslandsstofu til þess að styðja við fyrirtæki til þess að auka sölu á erlendum mörkuðum.“