Nýir ESB-skattar?
Nýr samræmdur orkuskattur og nýr sameiginlegur skattur á rafræn viðskipti eru meðal þess sem Belgar vilja að samkomulag náist um í formennskutíð þeirra í ESB.
Nýr samræmdur orkuskattur.
Belgar, sem nú fara með formennsku í ESB, hafa einsett sér að ná
samkomulagi fyrir árslok um nýjan samræmdan orkuskatt innan
sambandsins. Málið hefur verið árum saman til umfjöllunar innan
sambandsins, en Spánverjar hafa m.a. staðið í vegi fyrir framgangi
þess og vilja þeir tengja framgang málsins við opnun fransks
orkumarkaðar fyrir erlendri samkeppni. Að sögn Didiers Reynders,
fjármálaráðherra Belgíu, verður reynt að ná samkomulagi um málið á
leiðtogafundi ESB í desember nk. Náist það ekki verður að hans sögn
reynt að fara aðra leið, þ.e. koma á samstarfi a.m.k. tíu
aðildarríkja um slíkan skatt. Slík ákvörðun krefst hins vegar
samhljóma samþykkis í ráðherraráðinu sem gæti reynst torsótt.
Nýr sameiginlegur skattur á rafræn viðskipti.
Fjármálaráðherrarnir ræddu einnig um að taka upp
sameiginlegan skatt á rafræn viðskipti, en eins og staðan er nú
geta fyrirtæki utan ESB selt varning sinn virðisaukaskattsfrjálsan
innan ESB í gegnum Netið. Að sögn Reynders styðja þrettán
aðildarríki sambandsins þegar við tillöguna, og vonast hann til að
hún verði einnig samþykkt fyrir árslok.
Sjá nánar á heimasíðu sænsku samtaka atvinnulífsins.