Ný úttekt á hagvaxtarmöguleikum Íslands
Fulltrúar alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins McKinsey & Company kynntu í dag viðamikla úttekt á hagvaxtarmöguleikum Íslands. Úttektin hefur að geyma margvíslegar gagnlegar og þarfar ábendingar um hvað betur megi fara í atvinnulífinu, stjórnsýslunni og hagkerfinu í heild. Verkefnið var kynnt á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í febrúar á þessu ári, greiningarvinna hófst í vor og niðurstöður liggja nú fyrir sem varða leið Íslands til aukins hagvaxtar.
Fjallað er um málið á vef Viðskiptaráðs en þar segir að úttekt McKinsey sé í grófum dráttum þrískipt.
"Í fyrsta lagi er farið ítarlega yfir helstu áskoranir íslensks efnahagslífs nú. Í öðru lagi eru drifkraftar hagkerfisins skoðaðir og dregið fram hvar helstu þröskuldar í vegi hagvaxtar liggja. Að lokum eru helstu hlutar í hagvaxtaráætlun Íslands dregnir saman ásamt tillögum að því hvernig megi hátta innleiðingu þeirra."
Skýrsluna má nálgast á vef McKinsey og fréttatilkynningu fyrirtækisins má finna hér. Helstu þættir úttektarinnar eru eftirfarandi:
-
Ísland hefur fallið niður lista efnuðustu landa heims, mælt í landsframleiðslu á mann, og helsta áskorunin nú er að endurheimta vaxtarmöguleika í krefjandi umhverfi.
-
Þröskuldar á þeirri vegferð eru fjölmargir en þar má einna helst nefna hættuna á að aftur stefni í viðvarandi viðskiptahalla samfara aukinni neyslu á meðan fjárfesting stendur í stað. Þetta myndi leiða til þess að landið festist í vítahring gjaldeyrishafta, hás fjármagnskostnaðar, lágs fjárfestingarstigs og lítils hagvaxtar.
-
Hárri landsframleiðslu á mann er að verulegu leyti haldið uppi af mikilli atvinnuþátttöku og löngum vinnutíma en þetta óvenju háa framlags vinnuafls skyggir á framleiðnivandamál sem er í flestum greinum atvinnulífsins.
-
Fyrsta skref til að rjúfa þennan vítahring er að samstaða náist meðal allra hagsmunaaðila um trúverðuga áætlun um hagvöxt sem byggir á grunnstyrkleikum hagkerfisins og að tekið sé á helstu áskorunum mismunandi greina atvinnulífsins.
-
Sjálfbær hagvaxtaráætlun verður að ná til allra atvinnuvega, en felur sérstaklega í sér aukna skilvirkni í innlenda þjónustugeiranum, aukið virði takmarkaðra auðlinda og eflingu alþjóðlegrar atvinnustarfsemi - sem er forsenda heilbrigðs viðskiptajöfnuðar.
-
Gerð er grein fyrir nauðsynlegum aðgerðum til að efla skilvirkni, efla útflutningsgreinar og auka virði útflutnings sem byggir á náttúruauðlindum, t.a.m. með opnun hagkerfisins, bættu aðgengi að áhættufjármagni, úrbótum í menntakerfi, o.fl. - svo að á Íslandi verði viðskiptaumhverfi samkeppnishæft á heimsvísu.
-
Mikilvægt er nú að hagsmunaaðilar komist að samkomulagi um vaxtarstefnu fyrir Ísland og aðgerðir sem stuðli að því að stefnan nái fram að ganga.
Hreggviður Jónsson, formaður Viðskiptaráðs, segir greiningu McKinsey veita fjölmörg tækifæri til úrbóta sem geti lagt grunn að aukinni verðmætasköpun og betri lífskjörum á Íslandi ef atvinnulífið nýti tækifærin sem blasi við.
"Úttekt McKinsey & Company gefur okkur einstaka innsýn í hve
mikilvægt það er fyrir íslenskt hagkerfi að framtíðarsýn sé skýr og
að áætlunargerð byggi á ítarlegri greiningu á raunverulegri stöðu
atvinnulífs og hagkerfis. Nú liggur þessi greining fyrir að stórum
hluta og gerir og kleift að taka ákvarðanir á grundvelli
staðreynda.
Greiningin sem nú liggur fyrir sýnir okkur að tækifærin til úrbóta
eru mýmörg. Í þeim efnum er okkur tamt að horfa til stjórnvalda og
stjórnsýslu. En þó vinna McKinsey dragi fram veikleika í regluverki
og áherslum stjórnmála, þá er ljóst að tækifærin liggja ekki síður
á vettvangi atvinnulífs, hjá íslenskum fyrirtækjum. Þar sem margt
má betur fara og brýnt að forsvarsmenn í íslenskra fyrirtækja
bregðist við og vinni að úrbótum þar sem við á.
Nú er það okkar að nýta þessa góðu vinnu McKinsey og við eigum
mikið undir því að okkur takist vel til. Við verðum að stíga upp úr
núverandi farvegi, treysta samvinnu og móta stefnu og aðgerðir sem
efla verðmætasköpun og bæta lífskjör Íslendinga til komandi ára.
Það er mín skoðun að hugmyndir þær sem nú liggja fyrir um
samstarfsvettvang hagsmunaaðila þar sem áhersla verður lögð á
eftirfylgni við vinnu McKinsey, með áherslu á mótun hagvaxtarstefnu
og útfærslu aðgerða, verði að ná fram að ganga."
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, tekur undir niðurstöður greiningar McKinsey.
"Niðurstöðurnar eru í grundvallaratriðum réttar, að mínu mati og ég tel að þetta sé mjög þarft innlegg í umræðu um efnahags- og atvinnumál hér á landi. Ég vildi gjarna sjá að menn tækju þessar ábendingar alvarlega og við hjá SA erum að sjálfsögðu tilbúin að taka þátt í hverri þeirri vinnu sem menn vilja leggja í til að komast áfram."