Ný hagspá til 2016 kynnt á miðvikudaginn
Samtök atvinnulífsins kynna nýja hagspá efnahagssviðs SA miðvikudaginn 9. apríl. Þar verður rýnt í horfur til 2016 ásamt því sem farið verður yfir stöðu og horfur í ferðaþjónustu. Hagspáin verður kynnt á opnum morgunverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík kl. 8.30-10 og stendur skráning nú yfir.
DAGSKRÁ
Horfur til 2016: Jafnvægi innan hafta?
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður, efnahagssviðs SA.
Ferðaþjónustan: Framleiðni og lífskjör
Sigríður Mogensen, hagfræðingur á efnahagssviði SA
Hvað þarf til að skapa arðbærari ferðaþjónustu?
Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri Nordic Visitor
Fundarstjóri er Þorsteinn Víglundsson,framkvæmdastjóri SA.
Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8.