Morgunverðarfundur: Fjölbreytni í forystu og góðir stjórnarhættir skipta máli
Fimmtudaginn 8. mars nk. mun fjölbreyttur hópur úr atvinnulífi og nærumhverfi fyrirtækja fjalla um mikilvægi góðra stjórnarhátta og fjölbreytni í stjórnum, á morgunverðarfundi á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn er m.a. haldinn til að fylgja eftir samstarfssamningi SA, FKA, VÍ, Creditinfo og allra stjórnmálaflokka á Alþingi sem undirritaður var 15. maí 2009 um að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs til loka ársins 2013. Á fundinum verða gefnar út nýjar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja.
Fundurinn hefst kl. 8.15 og verður lokið ekki síðar en kl. 10. Dagskrá og allar nánari upplýsingar eru hér að neðan.
Þátttökugjald er kr. 3.600 með morgunverði sem hefst kl. 8.00. Fundurinn fer fram í sal H-I á 2. hæð Nordica.
Dagskrá á pdf sniði má nálgast hér
DAGSKRÁ
Opnunarávarp: Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra
Afhverju skiptir þetta máli?
Hrafnhildur S. Mooney, sérfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu
Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, NASDAQ
OMX Iceland
Berglind Ó. Guðmundsdóttir, lögfræðingur hjá
KPMG
Hvernig getum við látið þetta skipta máli?
Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands
Auður Hallgrímsdóttir, stjórnarformaður Sameinaða
lífeyrissjóðsins
Birna Einarsdóttir, formaður SFF
Tækifæri fyrir fyrirtæki
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group
Elín Jónsdóttir, lögfræðingur og stjórnarmaður
hjá Promens
Fundarstjórar: Þóranna Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri rekstrar og stjórnunar HR og Andrés
Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ - Samtaka verslunar og
þjónustu.
Að fundinum standa Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands, Félag kvenna í atvinnurekstri, Kauphöllin, Samtök verslunar og þjónustu og efnahags- og viðskiptaráðuneytið.