Minna atvinnuleysi vegna brottfluttra Íslendinga
Ætla má að atvinnuleysi væri mun meira eða í kringum ellefu prósent ef þúsundir Íslendinga hefðu ekki flúið land eftir hrun. Vinnumálastofnun hefur greitt um fimmtíu milljarða í atvinnuleysisbætur á síðastliðnum tveimur árum. Þetta kemur fram í fréttaskýringu fréttastofu Stöðvar 2 um vinnumarkaðinn.
Í umfjöllun á Vísi segir m.a.:
"Aldrei hafa jafn margir flutt af landi brott eins og á
síðastliðnum tveimur árum. Brottfluttir umfram aðflutta voru
tæplega sjö þúsund samkvæmt tölum hagstofunnar, þar af um sex
þúsund manns á vinnualdri.
Ástandið á vinnumarkaði hér heima hefur verið erfitt eftir að
kreppan skall á og því hafi margir kosið að flytja til útlanda í
leit að vinnu. Ætla má að atvinnuleysi væri mun meira ef ekki hefði
komið til þessa.
Atvinnuleysis mældist átta prósent í síðasta mánuði sem jafngildir
því að um 12.745 hafi verið án vinnu. Ef hins vegar þessir sex
þúsund sem fluttu til útlanda hefðu allir lent á atvinnuleysisskrá
hefði atvinnuleysi mælst rúmlega ellefu prósent.
Vinnumálastofnun hefur ekki skoðað sérstaklega áhrif
búferlaflutninga á atvinnuleysistölur. Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, sagði hins vegar í samtali við fréttastofu að
færri væru á atvinnuleysisskrá vegna þessa.
Hvert prósentustig í atvinnuleysi kostar ríkissjóð á bilinu tvo
til þrjá milljarða á ári.
Á síðustu tveimur árum hefur vinnumálastofnun greitt tæpa fimmtíu
milljarða í atvinnuleysisbætur. Á þessu ári er áætlað að stofnunin
greiði um tuttugu og einn milljarð í bætur."
Hægt er að horfa á umfjöllun Stöðvar 2 á vef Vísis: