Mikilvægt að samkeppni ríki milli háskóla
Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, flutti erindi um menntun og atvinnulíf á rannsóknarstefnu Reykjavíkurakademíunnar undir yfirskriftinni "Háskóli í hvert kjördæmi? - hvert stefnir með uppbyggingu háskóla í landinu?"
Í erindi sínu fjallaði Ari m.a. um mikilvægi samkeppnishugsunar í menntakerfinu og þau jákvæðu áhrif sem aukin samkeppni hefði haft á háskólaumhverfið hér á landi, háskóla "án landamæra", breyttar áherslur og möguleika varðandi rannsóknir og samstarf og áhrif fjármögnunar og rekstrarforms.
Kostnaðarþátttaka nemenda vinnur gegn
offjárfestingu
Ari sagði mikil takmörk á því að hægt væri að miðstýra þeirri þróun
sem til umfjöllunar væri á rannsóknar-stefnunni. Þá væru
þjónustusvæði einstakra skóla ekki landfræðilega afmörkuð. Ekki
væri æskilegt að reyna að reyna að "stýra" námsvali enda vissi
enginn hvaða eftirspurn yrði til staðar í framtíðinni en reyna
þyrfti að miðla sem bestum upplýsingum um líklega framtíðarþróun.
Ari fjallaði um skólagjöld og sagði kostnaðarþátttöku nemenda m.a.
vinna gegn offjárfestingu á háskólasviðinu.
Framboð og eftirspurn
Að lokum sagði Ari æskilegt að uppbygging náms mótaðist á
grundvelli framboðs og eftirspurnar og að samkeppni ríkti á milli
aðila. Samkeppnin leiddi væntanlega til verkaskiptingar en að
sértæk viðbrögð við "markaðsbrestum" kynnu að vera nauðsynleg.