Mikil þátttaka í námskeiðum um starfsmannamál
Hátt á fjórða hundrað manns hafa þegar tekið þátt eða skráð sig
á námskeið SA um starfsmannamál. Námskeiðin eru ætluð félagsmönnum
og eru haldin bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni, jafnt almenn
námskeið um túlkun kjarasamninga sem námskeið um nýjungar og
áherslur í starfsmannamálum. Sjá nánar um
námskeiðin.